Haustið i garðinum
Farið í Grasagarð Reykjavíkur. Jóhanna Þormar, garðyrkjufræðingur tekin tali um fræsöfnun, haustsáningu og skýlingu gróðurs.
Fjallað um gróðursetningu garðplantna og haustlauka.
Yfirlit um endurnýjun gamla garðsins, sem verið hefur í þáttunum í sumar. Birt yfirlit um kostnað við framkvæmdirnar, en menn geta haft það til hliðsjónar þeim útlátum sem almennt fylgja garðbyggingum.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 10. október 1990.

Þáttaröð frá árunum 1989-1990 um garða og gróður. Velt fyrir sér tilgangi þess að hafa garð og hvernig óskir eiga að rætast í garðinum. Umsjón: Hafsteinn Hafliðason. Stjórn og kvikmyndun: Baldur Hrafnkell Jónsson.