Haustið i garðinum
Farið í Grasagarð Reykjavíkur. Jóhanna Þormar, garðyrkjufræðingur tekin tali um fræsöfnun, haustsáningu og skýlingu gróðurs.
Í þessum þætti er fjallað um ræktun dvergtrjáa að japönskum hætti. Bonsai listgreinin hefur breiðst út á Vesturlöndum. Rætt er við Pál Kristjánsson og hann fræðir okkur um undirstöðuatriði þessarar sérstæðu garðyrkju.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 26. júlí 1989.

Þáttaröð frá árunum 1989-1990 um garða og gróður. Velt fyrir sér tilgangi þess að hafa garð og hvernig óskir eiga að rætast í garðinum. Umsjón: Hafsteinn Hafliðason. Stjórn og kvikmyndun: Baldur Hrafnkell Jónsson.