Haustið i garðinum
Farið í Grasagarð Reykjavíkur. Jóhanna Þormar, garðyrkjufræðingur tekin tali um fræsöfnun, haustsáningu og skýlingu gróðurs.
Herdís Pálsdóttir frá Fornhaga í Hörgárdal fór ung til Noregs og nam garðyrkju. Þrátt fyrir annasaman búskap og barnauppeldi stofnaði hún garðyrkjustöð og hefur verið
óþreytandi við að leiðbeina löndum sínum um refilstigu ræktunarmála alla tíð. Nú er hún á áttræðisaldri en lætur samt ekki deigan síga. Hún er nú "nestor" íslenskrar garðyrkju, margfróð og frásagnarglöð.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 5. september 1990.

Þáttaröð frá árunum 1989-1990 um garða og gróður. Velt fyrir sér tilgangi þess að hafa garð og hvernig óskir eiga að rætast í garðinum. Umsjón: Hafsteinn Hafliðason. Stjórn og kvikmyndun: Baldur Hrafnkell Jónsson.