Haustið i garðinum
Farið í Grasagarð Reykjavíkur. Jóhanna Þormar, garðyrkjufræðingur tekin tali um fræsöfnun, haustsáningu og skýlingu gróðurs.
Við fylgjumst með vorkomunni í garðinum og hugað er að plöntuvali og gróðursetningu. Ekki allir hafa garð, sumir hafa aðeins svalakassa. Svalakassar eru ekki allir þar sem þeir eru séðir.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 14. júní 1989.

Þáttaröð frá árunum 1989-1990 um garða og gróður. Velt fyrir sér tilgangi þess að hafa garð og hvernig óskir eiga að rætast í garðinum. Umsjón: Hafsteinn Hafliðason. Stjórn og kvikmyndun: Baldur Hrafnkell Jónsson.