Kristrún bjartsýn, Vindorkuver í notkun 2026, kaffið aldrei dýrara
Formaður Samfylkingarinnar er bjartsýn á framhald stjórnarmyndunarviðræðna og segir flokkana þrjá hafa náð lendingu í mörgum málum. Verri afkoma ríkissjóðs en búist var við hafi áhrif.
Tyrkir ætla að opna fleiri landamærastöðvar til að auðvelda Sýrlendingum í Tyrklandi að komast heim.
Vindorkuver Landsvirkjunar við Búrfell á að skila raforku innan tveggja ára. Leggja þarf rúma tuttugu kílómetra af vegum á framkvæmdasvæðið.
Það er ekki til eftirbreytni að mati framkvæmdastjóra SFS að útgerðin skuli ítrekað bera kostnað af loðnurannsóknum. Mun meira fjármagn ætti að veita til loðnurannsókna en nú er gert.
Heimsmarkaðsverð á kaffi hefur aldrei verið hærra.