Útvarp
Sjónvarp
Útvarp
KrakkaRÚV
UngRÚV
MenntaRÚV
Beint
RÁS 1
RÁS 2
RONDÓ
Dagskrá
Leit
Þættir
Sankti Kilda
Í þættinum er fjallað um sögu Sankti Kildu, eyja í Norður-Atlantshafi vestur af Skotlandi.
Fritz Bauer og réttarhöldin í Frankfurt IV
Fjórði og síðasti þáttur um réttarhöld yfir fyrrum starfsmönnum útrýmingarbúða nasista í Auschwitz í Frankfurt 1963, aðdraganda þeirra og aðstandendur.
Fritz Bauer og réttarhöldin í Frankfurt III
Þriðji þáttur um málarekstur gegn 22 fyrrum starfsmenn útrýmingarbúða nasista í Auschwitz í Frankfurt 1963, aðdraganda þess og aðstandendur.
Fritz Bauer og réttarhöldin í Frankfurt II
Annar þáttur um málarekstur gegn 22 fyrrum starfsmenn útrýmingarbúða nasista í Auschwitz í Frankfurt 1963, aðdraganda þess og aðstandendur.
Fritz Bauer og réttarhöldin í Frankfurt I
Í þættinum er fjallað um þýska saksóknarann Fritz Bauer, sem átti stóran þátt í að 22 fyrrum starfsmenn útrýmingarbúða nasista í Auschwitz voru sóttir til saka í Frankfurt 1963.
Japan Airlines flug 123
Í þættinum er fjallað um eitt mannskæðasta flugslys sögunnar, þegar Boeing 747-risaþota í innanlandsflugi brotlenti í fjallendi í Japan 12. ágúst 1985.
Fjólubláa hættan
Í þættinum er fjallað um „the lavender scare“, ofsóknir stjórnvalda í Bandaríkjunum á samkynhneigðu og hinsegin fólki í opinberum stofnunum ríkisins á kaldastríðsárunum og baráttuna…
Elon Musk í Norður-Ameríku
Annar þáttur um suðurafríska auðjöfurinn Elon Musk. Í þessum þætti er fjallað um flutning hans til Kanada og síðar Bandaríkjanna og fyrstu skref í fyrirtækjarekstri.
Ættir og ævi Elons Musk
Í þættinum er fjallað um suðurafríska auðjöfurinn umdeilda Elon Musk, fjölskyldu hans og æsku í Suður-Afríku.
Shackleton kemst heim
Sjötti og síðasti þáttur um breska heimskautakönnuðinn Ernest Shackleton og leiðangur hans á skipinu Endurance á suðurskautið.
Shackleton á Fílaey
Fimmti þáttur um ævintýri breska heimskautakönnuðarins Ernest Shackletons. Í þessum þætti er haldið áfram að rekja hrakningar Endurance-leiðangur hans á suðurheimskauti.
Shackleton á Endurance
Fjórði þáttur um breska heimskautakönnuðinn Ernest Shackleton. Í þessum þætti leggur hann af stað í þriðja leiðangur sinn til suðurskautslandsins.
Shackleton næstum á suðurpólnum
Þriðji þáttur um ævintýri breska heimskautakönnuðarins Ernest Shackletons. Í þessum þætti er fjallað um seinni hluta Nimrod-leiðangursins á suðurpólinn og næstu skref Shackletons á…
Shackleton á Nimrod
Annar þáttur um ævi breska heimskautakönnuðarins Ernest Shackletons. Í þessum þætti er fjallað um fyrsta sjálfstæða leiðangur hans á Suðurskautslandið með skipinu Nimrod 1907-1908.
Shackleton á Discovery
Í þættinum er fjallað um breska heimskautakönnuðinn Ernest Shackleton og fyrstu ferð hans á suðurskautslandið um borð í rannsóknarskipinu Discovery, 1901-1903.
Japanskir Bandaríkjamenn í síðari heimsstyrjöld
Eftir árás japanska hersins á bandarísku flotastöðina Pearl Harbor árið 1941 voru nærri 120 þúsund Bandaríkjamenn af japönskum ættum gerðir brottrækir af heimilum sínum á vesturströnd…
Sally Clark II
Síðari þáttur um Sally Clark, breska konu var árið 1998 ákærð fyrir að hafa myrt tvo syni sína þegar þeir voru einungis um tveggja og þriggja mánaða gamlir, en hafð var fyrir röngum…
Sally Clark I
Í þættinum er fjallað um alræmt breskt dómsmál. Sally Clark var árið 1998 ákærð fyrir að hafa myrt tvo syni sína þegar þeir voru einungis um tveggja og þriggja mánaða gamlir.
Frederick Cook og skandallinn á norðurpólnum II
Annar þáttur um bandaríska landkönnuðinn Frederick Cook, sem 1909 tilkynnti að hann hefði fyrstur manna komist á norðurpólnum. Í þessum þætti er fjallað um efasemdir sem fljótt vöknuðu…
Frederick Cook og skandallinn á norðurpólnum
Í þættinum er fjallað um bandaríska landkönnuðinn Frederick Cook, sem 1909 tilkynnti að hann hefði fyrstur manna komist á norðurpólnum. Í þessum þætti er fjallað um komu Cooks til…
Kamala Harris II
Annar þáttur um ævi bandarísku stjórnmálakonunnar Kamölu Harris. Í þessum þætti er fjallað um námsár hennar og upphaf á ferli hennar sem saksóknari.
Kamala Harris I
Fyrsti þáttur um ævi bandarísku stjórnmálakonunnar Kamölu Harris. Í þessum þætti er fjallað um ættir Harris á Indlandi og Jamaíku og fyrstu árin í ævi hennar.
Gíslatakan í Beslan II
Síðari þáttur um gíslatökuna í barnaskóla í Beslan í Norður-Ossetíu í Rússlandi í septemberbyrjun 2004.
Gíslatakan í Beslan I
Í þættinum er fjallað um gíslatöku í barnaskóla í bænum Beslan í Norður-Ossetíu í Rússlandi í septemberbyrjun árið 2004.
Andrew Wakefield II
Síðari þáttur um Bretann Andrew Wakefield, sem árið 1998 kom af stað kenningu um að tengsl væru milli bóluefnisins MMR og einhverfu í börnum. Kenningarnar reyndust ekki eiga við rök…
Andrew Wakefield og MMR I
Þátturinn fjallar um breskan lækni, Andrew Wakefield, sem árið 1998 kom af stað kenningu um að tengsl væru milli bóluefnisins MMR og einhverfu í börnum. Kenningarnar reyndust ekki…
Páskaeyja V
Lokaþáttur um sögu Páskaeyju eða Rapa Nui í Kyrrahafi.
Páskaeyja IV
Fjórði þáttur um sögu Páskaeyju á Kyrrahafi. Í þessum þætti er fjallað um tilraunir útlendinga til að gera eyjuna að stóru sauðfjárbúi og endalok sjálfstæðis eyjaskeggja í lok nítjándu…
Páskaeyja III
Í þættinum er haldið áfram umfjöllun um sögu Páskaeyju í Kyrrahafi. Í þessum þætti er fjallað um tilraunir evrópskra trúboða til að koma sér fyrir á eyjunni og kristna íbúa hennar,…
Páskaeyja II
Í þættinum er áfram fjallað um sögu Páskaeyju á sunnanverðu Kyrrahafi, sér í lagi þær hörmungar sem íbúar eyjunnar þurftu að þola á nítjándu öld.
Páskaeyja
Í þættinum er fjallað um afskekkta smáeyju í sunnanverðu Kyrrahafi, sem evrópskir sæfarar nefndu Páskaeyju.
Matthew Shepard
Í þættinum er fjallað um morðið á Matthew Shepard, samkynhneigðum ungum manni í Wyoming í Bandaríkjunum 1998, og áhrif þess á réttindabaráttu hinsegin fólks vestanhafs.
Galdrafár í Salem V
Fimmti og síðasti þáttur um galdrafárið mikla í Salem og nærsveitum á Nýja Englandi sem hófst 1692.
Galdrafár í Salem IV
Fjórði þáttur um galdrafárið mikla í Salem og nærsveitum á Nýja Englandi 1692.
Galdrafár í Salem III
Í þættinum er haldið áfram að fjalla um galdrafárið mikla sem braust út á Nýja Englandi 1692.
Galdrafár í Salem II
Í þættinum er áfram fjallað um undarlega atburði sem gerðust í Salem-þorpi á Nýja Englandi seint á 17. öld. Nokkrar ungar stúlkur kenndu sér undarlegra meina og sökuðu konur í þorpinu…
Galdrafár í Salem I
Í þættinum er fjallað um undarlega atburði sem gerðust í Salem-þorpi á Nýja Englandi seint á 17. öld. Nokkrar ungar stúlkur kenndu sér undarlegra meina og sökuðu konur í þorpinu um…
Iran Air 655
Í þættinum er fjallað um farþegaflug íranska flugfélagsins Iran Air sem var skotið niður af bandarísku herskipi á Persaflóa, 3. júlí 1988.
Bungaree
Í þættinum er haldið áfram umfjöllun um upphaf landnáms Breta í Ástralíu og sögu frumbyggjaþjóða Ástralíu. Í þessum þætti er sjónum beint að manni að nafni Bungaree, sem var túlkur…
Kúariða II
Í þættinum er haldið áfram að fjalla um kúariðufaraldurinn í Bretlandi á níunda og tíunda áratug síðustu aldar og áhrif hans á mannfólk.
Kúariða I
Í þættinum er fjallað um banvænan sjúkdóm sem fyrst varð vart í breskum nautgripum á níunda áratug síðustu aldar, kúariðu.
Apollo 8
Í þættinum er fjallað um ferð þriggja bandarískra geimfara á braut um tunglið, Apollo 8, um jólaleyti árs 1968.
Frumbyggjar Ástralíu III
Í þættinum er fjallað um fyrstu ár fanganýlendu Breta í Ástralíu og upphaf andspyrnu frumbyggja landsins við landtöku Breta.
Frumbyggjar Ástralíu II
Í þættinum er fjallað um fyrstu ár fanganýlendu Breta í Ástralíu og samskipti Bretanna við frumbyggja landsins.
Frumbyggjar Ástralíu
Í þættinum er fjallað um sögu frumbyggjaþjóða Ástralíu og þeirra fyrstu kynni við sæfara og landkönnuði frá norðurhveli jarðar.
Hvalskipið Essex IV
Fjórði og síðasti þáttur um bandaríska hvalskipið Essex sem fórst á sunnanverðu Kyrrahafi í nóvember 1820.
Hvalskipið Essex III
Þriðji þáttur um bandaríska hvalskipið Essex sem fórst á sunnanverðu Kyrrahafi í nóvember 1820.
Hvalskipið Essex II
Annar þáttur um bandaríska hvalskipið Essex sem fórst á sunnanverðu Kyrrahafi í nóvember 1820.
Hvalskipið Essex I
Fyrsti þáttur um bandaríska hvalskipið Essex sem fórst á sunnanverðu Kyrrahafi í nóvember 1820.
Gyðingar Danmerkur II
Síðari þáttur um björgun dönsku Gyðinganna á árum seinni heimsstyrjaldar.
Gyðingar Danmerkur
Í þættinum er fjallað um afdrif danskra Gyðinga eftir að Þýskaland hernam Danmörku í seinni heimsstyrjöld.
Anita Bryant og Save Our Children í Flórída
Í þættinum er fjallað um baráttu bandarísku söngkonunnar Anitu Bryant gegn réttindum hinsegin fólks í Flórída á ofanverðum áttunda áratug síðustu aldar.
Valdaránið í Chile 1973
Í þættinum er fjallað um valdarán hersins í Chile fyrir hálfri öld, 11. september 1973, og endalok forsetatíðar sósíalistans Salvadors Allende.
Madagaskar II
Síðari þáttur um sögu Madagaskar og valdatíð drottningarinnar Ranavalonu á 19. öld, sem sögð er hafa verið grimmlynd og blóðþyrst en varðist af hörku tilraunum evrópsku nýlenduveldanna…
Madagaskar
Í þættinum er fjallað um sögu Madagaskar frá landnámi eyjunnar og fram á valdatíð drottningarinnar Ranavalonu á 19. öld, sem sögð er hafa verið grimmlynd og blóðþyrst.
Hvarf Emanuelu Orlandi
Í þættinum er fjallað um eitt alræmdasta mannhvarfsmál í sögu Ítalíu, hvarf hinnar fimmtán ára gömlu Emanuelu Orlandi í Rómaborg í júní 1983. Emanuela var búsett í Vatíkaninu og lífseigar…
Borpallurinn Alexander Kielland
Í þættinum er fjallað um eitt mannskæðasta slys í sögu Noregs. Í illviðri 27. mars 1980 hvolfdi olíuborpallinum Alexander Kielland á Norðursjó og 123 menn fórust.
Raunir Ödu Blackjack II
Síðari þáttur um Ödu Blackjack, unga Inúítakonu sem endaði alein á eyðiey á norðurhjara eftir að hafa slegist í för með leiðangri á vegum landkönnuðarins Vilhjálms Stefánssonar 1921.
Raunir Ödu Blackjack
Í þættinum er fjallað um Ödu Blackjack, unga Inúítakonu sem slóst í för með leiðangri á vegum landkönnuðarins Vilhjálms Stefánssonar til Wrangel-eyju á norðurhjara 1921.
Gullæðið í Kaliforníu II
Síðari þáttur um gullæðið mikla sem hófst í Kaliforníu árið 1848. Í þessum þætti er fjallað um straum gullgrafara og annarra landnema til Kaliforníu og hryllilega meðferð þeirra á…
Gullæðið í Kaliforníu I
Fyrsti þáttur um gullæðið mikla sem braust út í Kaliforníu árið 1848.
Vermeer-falsarinn
Í þættinum er fjallað um hollenska listamanninn Han van Meegeren, sem falsaði verk eftir landa sinn, 17. aldar-meistarann Johannes Vermeer, á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar.
Bólusótt í Birmingham
Í þættinum er fjallað um dularfullt tilfelli bólusóttar sem upp kom í Birmingham á Englandi haustið 1978, þegar talið var að búið væri að útrýma bólusótt á heimsvísu.
Kjarnorkukafbáturinn Kúrsk
Í þættinum er fjallað um rússneska kjarnorkukafbátinn Kúrsk, sem sökk í Barentshafi í ágúst 2000, og tilraunir Rússlands og erlendra ríkja til að bjarga áhöfn hans af hafsbotni í tæka…
Louis Le Prince og upphaf kvikmyndatækninnar II
Síðari þáttur um franska uppfinningamanninn Louis Le Prince, sem þróaði eina fyrstu kvikmyndavélina en hvarf á dularfullan hátt árið 1890. Í síðari þætti er fjallað um leitina að Le…
Louis Le Prince og upphaf kvikmyndatækninnar I
Í þættinum er fjallað um ævi og störf Louis Le Prince, fransks uppfinningamanns sem starfaði í Bretlandi og Bandaríkjunum. Le Prince var brautryðjandi á sviði kvikmyndaupptökutækni,…
Kjarnorkutilraunir á Marshall-eyjum
Í þættinum er fjallað um sögu Marshall-eyja í Kyrrahafi. Bandaríkjamenn gerðu fjölda tilrauna með kjarnorkusprengjur á eyjunum á árum kalda stríðsins. Eyjaskeggjar voru fluttir burt…
Grænlenskur munaðarleysingi í New York II
Síðari þáttur um ævi Minik Wallace.
Grænlenskur munaðarleysingi í New York
Fyrsti þáttur um ævi Minik Wallace, grænlenskan pilt sem bandaríski landkönnuðurinn Robert Peary flutti til New York barn að aldri í lok nítjándu aldar.
Brons og blóð í Benín
Í þættinum er fjallað um konungsríkið Benín sem fyrr á öldum var eitt öflugasta veldi vestanverðrar Afríku, þekkt fyrir bæði magnaða listmuni og grimmilega trúarsiði. Á nýlendutímanum…
Saga Katar
Í þættinum er fjallað um sögu Persaflóaríkisins Katar í tilefni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu sem haldið er þar í ár. Katar er eitt ríkasta land heims í dag en var á öldum áður…
Claude Cahun og heimsstyrjöldin á Jersey
Í þættinum er fjallað um franska fjöllistamanninn Claude Cahun, sem ögraði viðteknum kynjahlutverkum og stóð í andspyrnu gegn Þjóðverjum á Ermarsundseyjunni Jersey í seinni heimsstyrjöld.
Bankaránið á Norrmalmstorgi
Í þættinum er fjallað um alræmt rán og gíslatöku í banka við Norrmalmstorg í miðborg Stokkhólms 1973, sem varð til þess að hugtakið ?Stokkhólms-heilkenni? var fundið upp.
Eldgosið á Martinique
Í þættinum er fjallað um mikið eldgos sem gjöreyddi borginni Saint Pierre á Karíbahafseyjunni Martinique árið 1902.
Fram-leiðangurinn IV
Fjórði og síðasti þáttur um tilraun norska könnuðarins Fridtjofs Nansens til að komast á norðurpólinn á síðasta áratug 19. aldar. Í þessum þætti er fjallað um dvöl Nansens og Johansens…
Fram-leiðangurinn III
Þriðji þáttur um tilraun norska könnuðarins Fridtjofs Nansens til að komast á norðurpólinn á síðasta áratug 19. aldar. Í þessum þætti er fjallað um leit Nansens og Johansens að Frans…
Fram-leiðangurinn II
Annar þáttur um tilraun norska könnuðarins Fridtjofs Nansens til að komast á norðurpólinn á síðasta áratug 19. aldar. Í þessum þætti er fjallað um ferð Nansens og Hjalmars Johansens…
Fram-leiðangurinn I
Fyrsti þáttur um tilraun norska könnuðarins Fridtjofs Nansens til að komast á norðurpólinn á síðasta áratug 19. aldar. Í þessum þætti er fjallað um undirbúning og upphaf leiðangursins,…
Þjóðarmorðið á Sirkössum
Í þættinum er fjallað um stríð Rússneska keisaradæmisins við smáþjóðina Sirkassa í Kákasusfjöllum á nítjándu öld, sem lauk með miklu blóðbaði og því að nær allir Sirkassar voru hraktir…
Leiðangur Burke og Wills III
Í þættinum er fjallað um tilraun Robert O'Hara Burkes og hóps manna að verða fyrstir til að þvera Ástralíu frá suðri til norðurs á árunum 1860-1861. Þriðji þáttur og síðasti.
Leiðangur Burke og Wills II
Í þættinum er fjallað um tilraun Robert O'Hara Burkes og hóps manna að verða fyrstir til að þvera Ástralíu frá suðri til norðurs á árunum 1860-1861. Annar þáttur.
Leiðangur Burke og Wills I
Í þættinum er fjallað um tilraun Robert O'Hara Burkes og hóps manna að verða fyrstir til að þvera Ástralíu frá suðri til norðurs á árunum 1860-1861. Fyrsti þáttur.
Hungursneyðin í Úkraínu
Í þættinum er fjallað um holodomor, hungursneyðina miklu í Úkraínu á fyrstu árum fjórða áratugar síðustu aldar, þegar milljónir almennra borgara vesluðust upp úr hungri eftir samyrkjuvæðingu…
Robert Hanssen
Í þættinum er fjallað um bandaríska alríkislögreglumanninn Robert Hanssen, sem um árabil lak bandarískum ríkisleyndarmálum til Sovétríkjanna og Rússlands.
Nellie Bly II
Síðari þáttur um ævi og ævintýri bandarísku blaðakonunnar Nellie Bly. Í þessum þætti segir frá frægri ferð hennar umhverfis jörðina 1889-1890.
Nellie Bly I
Í þættinum er fjallað um Nellie Bly, frumkvöðul í blaðamennsku í Bandaríkjunum á ofanverðri nítjándu öld. Hún vakti athygli fyrir að þykjast vera veik á geði og varpa ljósi á bágar…
Jonas Salk og mænuveikin
Í þættinum er fjallað um bandaríska lækninn Jonas Salk, sem vann að þróun bóluefnis við mænuveiki í Bandaríkjunum um miðbik tuttugustu aldar, og var hampað sem þjóðhetju fyrir störf…
Breski íshafsleiðangurinn II
Í þættinum er fjallað um leiðangur ungra Breta á Grænlandsjökul til veðurathugana veturinn 1930-1931. Einn þeirra festist á jöklinum og voru Íslendingar, meðal annarra, ræstir út að…
Breski íshafsleiðangurinn I
Í þættinum er fjallað um leiðangur ungra Breta á Grænlandsjökul til veðurathugana veturinn 1930-1931. Bretarnir höfðu viðkomu á Íslandi og síðar voru Íslendingar ræstir út að bjarga…
Norska svartmálmssenan
Í þættinum er fjallað um upphafsár norsku svartmálms- eða black metal-senunnar, unga rokktónlistarmenn sem brenndu aldagamlar kirkjur til grunna og myrtu hver aðra.
Hrakningar Donner-flokksins II
Síðari þáttur um hrakfarir hins svonefnda Donner-flokks, bandarískra landnema sem reyndu að komast landleiðina vestur til Kaliforníu sumarið 1846. Í þessum þætti segir frá vetursetu…
Hrakningar Donner-flokksins I
Í þættinum er fjallað um svokallaðan Donner-flokk, hóp bandarískra landnema sem freistuðu þess að ferðast þvert yfir Norður-Ameríku til Kaliforníu árið 1846, en lentu í miklum hrakningum…
Magnus Hirschfeld
Í þættinum er fjallað um þýska lækninn Magnus Hirschfeld, sem var frumkvöðull í kynfræði á fyrstu árum 20. aldar og baráttumaður fyrir réttindum hinsegin fólks.
Aum Shinrikyo II
Síðari þáttur af tveimur um japanska dómsdagssöfnuðinn Aum Shinrikyo og voðaverk þeirra.
Aum Shinrikyo I
Fyrri þáttur af tveimur um japanska sértrúarsöfnuðinn Aum Shinrikyo.
El Faro
Í þættinum er fjallað um eitt mannskæðasta sjóslys Bandaríkjanna á síðari árum. Í október 2015 hvarf bandarískt flutningaskip við Bahama-eyjar í miðjum fellibyl.
Fjölskyldan Dupont de Ligonnès
Í þættinum er fjallað um eitt alræmdasta sakamál Frakklands á síðari árum: hvarf sex manna fjölskyldu, í frönsku borginni Nantes, í apríl 2011.
Soldáninn í Brúnei
Í þættinum er fjallað um soldánsveldið Brúnei í Suðaustur-Asíu og sér í lagi núverandi soldán þess og bróður hans, en báðir eru þekktir fyrir eyðslusemi og gjálífi.
Leitin að Eichmann II
Í þættinum er haldið áfram að fjalla um leitina að þýska nasistaforingjanum Adolf Eichmann eftir síðari heimsstyrjöld. Síðari þáttur.
Leitin að Eichmann I
Í þættinum er fjallað um leitina að þýska nasistaforingjanum Adolf Eichmann eftir síðari heimsstyrjöld.
Afganska baráttukonan Meena
Í þættinum er fjallað um afgönsku baráttukonuna Meenu. Hún stofnaði Byltingarsamtök afganskra kvenna (RAWA) í Afganistan á áttunda áratug síðustu aldar til að berjast fyrir réttindum…
Kasakstan Nasarbajevs
Í þættinum er fjallað um sögu Mið-Asíuríkisins Kasakstan á síðari árum, og sér í lagi valdatíð forsetans Núrsultans Nasarbajev sem lét af embætti í ársbyrjun 2019 eftir nærri þrjá…
Belgica-leiðangurinn
Í þættinum er fjallað um leiðangur undir stjórn Belgans Adrien de Gerlache til Suðurskautslandsins í lok nítjándu aldar. Skip leiðangursmanna festist mánuðum saman í hafís og í myrkri…
Eþíópía VI
Þetta er sjöttu þáttur um sögu Eþíópíu. Í þættinum er fjallað um sögu landsins á tuttugustu öld, ævi og valdatíð Haile Selassie keisara og seinna stríð Eþíópíumanna og Ítala.
Eþíópía V: Haile Selassie
Þetta er fimmti þáttur um sögu Eþíópíu. Í þættinum er fjallað um sögu landsins á tuttugustu öld, ævi og valdatíð Haile Selassie keisara og seinna stríð Eþíópíumanna og Ítala.
Eþíópía IV: Stríðið við Ítali
Í þættinum er haldið áfram umfjöllun um sögu Afríkuríkisins Eþíópíu. Í þessum þætti er fjallað um valdatíð keisarans Jóhannesar 4. og eftirmanns hans, Menelik 2., og stríð Eþíópíumanna…
Pocahontas
Í þættinum er fjallað um raunverulega ævi Pocahontas, ungrar frumbyggjastúlku sem varð á vegi enskra landnema í Norður-Ameríku í byrjun 17. aldar.
Finnska borgarastyrjöldin
Í þættinum er fjallað um finnsku borgarastyrjöldina í ársbyrjun 1918.
Ferdinand og Imelda Marcos
Í þættinum er fjallað um Ferdinand Marcos, forseta og einráð á Filippseyjum, konu hans Imeldu, og mótmælin sem urðu til þess að þau hrökkluðust í útlegð í febrúar 1986.
Osama bin Laden III
Þriðji og síðasti þáttur um ævi hryðjuverkamannsins Osama bin Laden.
Osama bin Laden II
Í þættinum er haldið áfram umfjöllun um ævi hryðjuverkamannsins Osama bin Laden.
Osama bin Laden I
Í þættinum er fjallað um ævi hryðjuverkaleiðtogans Osama bin Laden.
Stríðið 1812 og bruninn í Washington
Í þættinum er fjallað um stríð Breta og Bandaríkjamanna sem kennt er við upphafsárið 1812, og brunann í Washington, þegar breskir hermenn kveiktu í bæði Hvíta húsinu og þinghúsinu…
Byltingin í Túnis
Í þættinum er fjallað um upphaf byltingarinnar í Túnis 2011, fyrstu daga arabíska vorsins, og manninn sem sagður er hafa hrundið byltingunni af stað með því að kveikja í sér.
Skrílslæti á jólum
Í þættinum er stiklað á stóru í sögu jólahátíðarinnar, meðal annars um ofsafengin skrílslæti og fyllerí sem áður einkenndu jólin víða, og tilraunir til að banna jólahald í gegnum árin.
Eþíópía III: Tewodros 2. keisari
Í þættinum er fjallað um ævi Tewodrosar 2., keisara Eþíópíu um miðbik nítjándu aldar, sem sameinaði landið eftir langa borgarastyrjöld en lenti svo í deilum við breska heimsveldið.
Eþíópía II
Í þættinum er haldið áfram að fjalla um sögu Eþíópíu.
Eþíópía I
Í þættinum er fjallað um sögu Eþíópíu frá því að þar litu fyrst konungsríki dagsins ljós og fram á sextándu öld.
Chagos-eyjar
Í þættinum er fjallað um Chagos-eyjar, eyjaklasa í miðju Indlandshafi. Íbúar á eyjunum voru fluttir þaðan nauðugir á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar svo hægt væri að byggja…
Edward Jenner
Í þættinum er fjallað um sögu bólusetninga og sér í lagi störf breska læknisins Edwards Jenner, sem framkvæmdi fyrstu eiginlegu bólusetninguna við bólusótt árið 1796.
Þjófnaðurinn á Monu Lisu
Í þættinum er fjallað um þjófnað á Louvre-safni í París 1911, þegar sjálfri Monu Lisu var stolið.
Mary Anning
Í þættinum er fjallað um Mary Anning, breska almúgakonu sem var uppi í byrjun nítjándu aldar og er stundum kölluð móðir steingervingafræðinnar, en hún leitaði og fann steingervinga…
Rafherbergið
Í þættinum er fjallað um Rafherbergið, glæsilegan sal klæddan rafi sem Friðrik 1. Prússakonungur gaf Pétri mikla Rússakeisara í byrjun 18. aldar. Klæðningarnar og aðrir munir úr herberginu…
Voulet-Chanoine-leiðangurinn
Í þættinum er fjallað um leiðangur ungra franskra herforingja frá Senegal að Tsjad-vatni í vestanverðri Afríku, með mörg hundruð manna lið, í lok 19. aldar. Ferð þeirra einkenndist…
Nagorno-Karabakh
Í þættinum er fjallað um héraðið Nagorno-Karabakh í Kákasusfjöllum sem Armenía og Aserbaídsjan hafa eldað grátt silfur vegna allt frá falli Sovétríkjanna. Allt að 30 þúsund manns féllu…
Ester Blenda Nordström II
Annar þáttur af tveimur um Ester Blendu Nordström, brautryðjenda í rannsóknarblaðamennsku í Svíþjóð á fyrri hluta tuttugustu aldar. Í þessum síðari þætti er fjallað um feril Esterar…
Ester Blenda Nordström I
Í þættinum er fjallað Ester Blendu Nordström (1891-1948), frumkvöðul í blaðamennsku í Svíþjóð. Meðal annars villti hún á sér heimildir og réð sig sem vinnukonu á bóndabæ til að fjalla…
McMartin-málið
Í þættinum er fjallað um eitt lengsta og dýrasta dómsmál Bandaríkjanna. Árið 1983 var starfsfólk leikskóla í úthverfi Los Angeles sakað um að hafa níðst á tugum barna í sinni umsjá,…
Dauðinn á Norðurslóðum
Í þættinum er fjallað um Pólaris-leiðangur bandaríska könnuðarins Charles Francis Hall, sem vildi freista þess að komast fyrstur manna á Norðurpólinn 1871, en lést á leiðinni - á dularfullan…
Alexander Lukasjenka
Í þættinum er fjallað um ævi og feril Alexanders Lukasjenka, forseta Hvíta-Rússlands til meira en aldarfjórðungs.
Morðið á Olof Palme og Skandiamaðurinn
Í þættinum er fjallað um Stig Engström, sænskan auglýsingateiknara sem nýverið var sakaður um að vera morðingi Olofs Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, í febrúar 1986.
Þáttur 95 af 52
Hong Kong og fyrra ópíumstríðið
Í þættinum er fjallað um sögu Hong Kong, fyrra ópíumstríð Kínverja og Breta og tildrög þess að Bretar lögðu undir sig Hong Kong.
Tenerife-slysið
Í þættinum er fjallað um mannskæðasta flugslys sögunnar, þegar röð tilviljana og mistaka leiddi til þess að tvær Boeing 747-risaþotur skullu saman á flugvellinum Los Rodeos á Tenerife…
Typhoid Mary
Í þættinum er fallað um Mary Mallon, matselju í New York sem smitaði á sjötta tug manna af taugaveiki í upphafi 20. aldar, án þess að þó að sýna nokkur einkenni veikinnar sjálf.
Túrkmenistan
Í þættinum er fjallað um sögu Mið-Asíuríkisins Túrkmenistan á tuttugustu öld og sér í lagi valdatíð hins sérvitra einræðisherra Saparmurat Niyazov, sem kallaði sig Turkmenbashi, „fremstan…
Joe Biden
Í þættinum er fjallað um æsku, uppvöxt og upphaf stjórnmálaferils Joe Bidens, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna og fambjóðanda til forsetaefnis Demókrataflokksins í komandi forsetakosningum…
Bókaþjófurinn í Kaupmannahöfn
Í þættinum er fjallað um stórtækasta bókaþjóf danskrar sögu, sem herjaði á Konunglega bókasafnið í Kaupmannahöfn á áttunda áratugnum og stal þaðan mörg þúsund bókum. Málið var ekki…
Leiðangur Þjóðverja á Nanga Parbat 1934, II
Seinni þáttur um leiðangur þýskra göngumanna á fjallið Nanga Parbat í Himalajafjöllum árið 1934. Þegar göngumennirnir, ásamt nepölskum burðarmönnum, voru komnir langleiðina á tindinn…
Leiðangur Þjóðverja á Nanga Parbat 1934, I
Fyrri þáttur um ferð þýskra göngugarpa á fjallið Nanga Parbat í Himalaja-fjöllum árið 1934. Fjallgöngumennirnir nutu stuðnings stjórnvalda í Þýskalandi nasismans og ætluðu að sanna…
Lindbergh-barnið
Í þættinum er fjallað um það þegar 20 mánaða gömlum syni bandaríska flugkappans Charles Lindbergh var rænt af heimili þeirra í New Jersey í mars 1932. Við tók margra ára lögreglurannsókn…
Bernie Sanders
Í þættinum er fjallað um bandaríska öldungadeildarþingmanninn og forsetaframbjóðandann Bernie Sanders - æsku hans í Brooklyn, háskólaár og baráttustörf í Chicago og upphaf stjórnmálaferilsins…
Morðið á Rafik Hariri II
Seinni þáttur um morðið á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, en hann lét lífið í bílsprengjuárás í miðborg Beirút um miðjan febrúar 2005. Í þessum síðari þætti er…
Morðið á Rafik Hariri I
Í þættinum er fjallað um sprengjutilræði sem varð fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, Rafik Hariri, að bana árið 2005 og um borgarastyrjöldina sem geisaði í Líbanon í fimmtán ár…
Þáttur 82 af 52
Korean Airlines flug 007
Haustið 1983 skaut sovésk orrustuþota niður suðurkóreska farþegaþotu, Korean Airlines flug 007 frá New York til Seúl, með þeim afleiðingum að allir um borð fórust.
Bougainville
Eyjan Bougainville tilheyrir Papúa Nýju Gíneu, en eyjarskeggjar samþykktu nýlega í þjóðaratkvæðagreiðslu að lýsa yfir sjálfstæði. Saga eyjunnar er blóði drifin, en stríð brast þar…
Gíslatakan i leikhúsinu í Moskvu
Rúmenska byltingin 1989
Shapira-málið
Í þættinum er fjallað um mál sem skók fornleifafræðaheiminn í Evrópu á ofanverðri nítjándu öld. Forngripasali frá Jerúsalem birtist þá í Lundúnum og sagðist hafa í fórum sínum þrjú…
Bhopal-slysið
Bhopal-slysið var eitt skelfilegasta umhverfisslys sögunnar. Aðfaranótt 3 desember 1984 láku 30 þúsund tonn af eiturgasi frá verksmiðju Union Carbide sem framleiddi skordýraeitur.
Úígúrar
Í þættinum er fjallað um sögu Úígúra, tyrkneskumælandi múslimaþjóðar í norðvestanverðu Kína, sem lengi hefur sætt ofsóknum af hendi kínverskra stjórnvalda.
Stórvesírinn
Í þættinum er fjallað um sögu tyrkneska Ottómanveldisins um miðbik sautjándu aldar, og sér í lagi um Mehmet Köprülü, miskunnarlausan stórvesír sem sölsaði undir sig öll völd í ríkinu.
Þjóðarmorðið í Namibíu
Í þættinum er fjallað um fyrsta þjóðarmorð tuttugustu aldarinnar, þegar þýskir nýlenduherrar þar sem nú er Namibía réðust af fullum þunga að hirðingjaþjóði einni sem hafði lítið gert…
Andaman-eyjar
Í þættinum er fjallað um sögu Andaman-eyjaklasans í Indlandshafi, grimmilega fanganýlendu sem Bretar komu þar upp á nítjándu öld og afdrif frumbyggja eyjarinnar í kjölfarið.
Abba Kovner og Gyðingarnir í Vilnu III
Þetta er þriðji og síðasti þáttur um andspyrnumenn Gyðinga í Vilníus í Litháen í seinni heimsstyrjöld, og leiðtoga þeirra, skáldið Abba Kovner. Í stríðslok varð hann heltekinn af hugmyndinni…
Abba Kovner og Gyðingarnir í Vilnu II
Í þættinum er haldið áfram með sögu andspyrnumanna Gyðinga í Vilníus í Litháen í seinni heimsstyrjöld. Í þessum þætti er fjallað um afdrif Gyðinganna sem flúðu út í skóg eftir að gettóið…
Estonia-slysið
Abba Kovner og Gyðingarnir í Vilnu
Í þættinum er fjallað um vopnaða andspyrnuhreyfingu ungra Gyðinga í gettóinu í Vilníus í Litháen í seinni heimsstyrjöld.
Jean-Bédel Bokassa
Í þættinum er fjallað um Jean-Bédel Bokassa, herforingja sem tók völdin í Mið-Afríkulýðveldinu á sjöunda áratug síðustu aldar og lét svo krýna sig keisara með miklum tilkostnaði.
Amelia Earhart
Í þættinum er fjallað um bandaríska flugfrömuðinn Ameliu Earhart, og hvarf hennar á flugi yfir Suður-Kyrrahafi 1937.
Boris Johnson
Í þættinum er fjallað um æsku og uppvöxt Borisar Johnsons, forsætisráðherra Bretlands.
Saga Súdans III
Síðasti þáttur af þremur um sögu Afríkuríkisins Súdan. Í þessum þætti er fjallað um lokaár borgarstyrjaldarinnar í suðurhluta landsins, áhrif olíuvinnslu á átökin og klofning landsins,…
Bandarískir nasistar
Í þættinum er fjallað um Þýsk-bandaríska bandalagið, nasistasamtök sem starfrækt voru af Bandaríkjamönnum af þýskum ættum á árunum fyrir seinni heimsstyrjöld, með þýska nasistaflokkinn…
Saga Súdans II
Í þættinum er fjallað um stormasama nútímasögu Súdans frá sjálfstæði 1956 og fram að valdaráni herforingjans Omars al-Bashir 1989.
Saga Súdans I
Í þættinum er fjallað um sögu Afríkuríkisins Súdan fram á 20. öld, meðal annars um það hvernig Egyptar sölsuðu þetta stóra land undir sig og baráttu þeirra og Breta við súdanskan spámann…
Sarajevo-handritið
Í þættinum er sögð ótrúleg saga forns Gyðingahandrits sem skrifað var á Spáni á fimmtándu öld, rataði síðar til Sarajevó í Bosníu þar sem menn lögðu sig oftar en einu sinni í lífshættu…
Kapphlaupið á Suðurpólinn IV
Fjórði og síðasti þáttur um leiðangur breska sjóherforingjans Robert Falcon Scott á Suðurskautslandið. Í þessum þætti er fjallað um hið eiginlega kapphlaup hans og Norðmannsins Roald…
Kapphlaupið á Suðurpólinn III
Þriðji þáttur um leiðangur breska sjóherforingjans Roberts Falcon Scott á Suðurskautslandið 1910. Í þessum þætti er fjallað um fyrsta sumar Scotts og leiðangursmanna á Suðurskautinu…
Kapphlaupið á Suðurpólinn II
Annar þáttur um leiðangur breska sjóherforingjans Roberts Falcon Scott á Suðurskautslandið 1910. Í þessum þætti er fjallað um keppinaut Scotts á Suðurpólinn, Norðmanninn Roald Amundsen,…
Kapphlaupið á Suðurpólinn I
Fyrsti þáttur um leiðangur breska sjóherforingjans Roberts Falcon Scott á Suðurskautslandið 1910. Í þessum þætti er fjallað um fyrirrennara Scotts í heimskautakönnun, fyrri leiðangur…
Chagos-eyjar
Í þættinum er fjallað um Chagos-eyjar, eyjaklasa í miðju Indlandshafi. Íbúar á eyjunum voru fluttir þaðan nauðugir á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar svo hægt væri að byggja…
Maurice Hilleman
Í þættinum er fjallað um Maurice Hilleman, bandarískan vísindamann sem þróaði meira en 40 bóluefni á ferlinum, fleiri en nokkur annar, og vann meðal annars að bóluefninu gegn mislingum.
Tyrkneska kvennaveldið II
Í þættinum er haldið áfram að fjalla um það tímabil í sögu Tyrkjaveldis þar sem mæður og barnsmæður Tyrkjasoldána voru mjög valdamiklar við hirðina og beittu áhrifum sínum óspart,…
Tyrkneska kvennaveldið I
Í þættinum er haldið áfram að fjalla um sögu Ottómanveldisins tyrkneska. Á ofanverðri sextándu öld fór í hönd tímabil þar sem mæður og barnsmæður Tyrkjasoldána voru mjög valdamiklar…
Pitcairn-eyja
Í þættinum er fjallað um sögu afskekktrar smáeyju í Kyrrahafi, Pitcairn. Uppreisnarmenn af breska skipinu Bounty settust að á eyjunni árið 1790. Tveimur öldum síðar urðu afkomendur…
Gröf Tútankamons
Í þættinum er fjallað um breska fornleifafræðinginn Howard Carter, sem árið 1922 uppgötvaði grafhvelfingu drengfaraósins Tútankamons í Konungadalnum í Egyptalandi.
Landnám Venesúela
Í þættinum er fjallað um sögu Suður-Ameríkulandsins Venesúela eftir að Spánverjar hófu að leggja landið undir sig í byrjun sextándu aldar.
George Soros
Í þættinum er fjallað um ævi auðjöfursins umdeilda, George Soros.
Ebólufaraldurinn 1976
Í þættinum er fjallað um fyrstu tilfelli sjúkdómsins ebólu sem vísindamenn rannsökuðu, í afskekktu þorpi í Saír í Mið-Afríku 1976.
Súleiman mikli og Roxelana
Í þættinum er fjallað um valdatíð Súleimans mikla, soldáns tyrkneska Ottómanveldisins 1520-1566, og um Roxelönu, sem var ambátt í kvennabúri soldáns sem fangaði hjarta soldánsins og…
Landvinningar Tyrkjasoldána
Þátturinn er sá þriðji um sögu Ottómanveldisins tyrkneska. Í þessum þætti er fjallað um síðari hluta valdatíðar Mehmets 2., eftir að hann sigraði Konstantínópel 1453, og eftirmenn…
Lockerbie
Í þættinum er fjallað um hryðjuverkaárás 21. desember 1988, sem kennd er við skoska smábæinn Lockerbie.
Fall Konstantínópel
Í þættinum er fjallað um árás og umsátur Ottóman-Tyrkja, undir stjórn soldánsins unga Mehmet 2., á höfuðborg Býsansveldis, Konstantínópel, vorið 1453.
Upphafsár Ottómanveldisins
Í þættinum er fjallað um tilurð hins tyrkneska Ottómanveldis á Anatólíuskaga í upphafi fjórtándu aldar og fyrstu herferðum Ottóman-Tyrkja gegn Býsansríki og Serbum á Balkanskaga.
Ota Benga
Í þættinum er fjallað um kongóskan karlmann, Ota Benga, sem var hafður til sýnis með öpum í dýragarðinum í Bronx í New York við upphaf tuttugustu aldar.
Jim Jones og Peoples Temple II
Í þættinum er fjallað áfram um bandaríska sértrúarsöfnuðinn Peoples Temple og leiðtoga hans Jim Jones, en fjörutíu ár eru um þessar mundir síðan meira en 900 liðsmenn safnaðarins frömdu…
Jim Jones og Peoples Temple I
Í þættinum er fjallað um bandaríska sértrúarsöfnuðinn Peoples Temple og leiðtoga hans Jim Jones, en fjörutíu ár eru um þessar mundir síðan meira en 900 liðsmenn safnaðarins frömdu…
Herforingjastjórnin í Brasilíu
Í þættinum er fjallað um valdarán hersins í Brasilíu 1964 og einræðisstjórn herforingja sem fylgdi fram til ársins 1985.
Konungar Sádi-Arabíu
Í þættinum er fjallað um sögu konungsfjölskyldunnar í Sádi-Arabíu.
1MDB
Í þættinum er fjallað um eitt umfangsmesta fjársvikamál sem uppgötvast hefur, skipulagðan þjófnað forsætisráðherra Malasíu og ungs glaumgosa á milljörðum dollara úr opinberum fjárfestingarsjóði…
Oxycontin
Í þættinum er fjallað um verkjalyfið Oxycontin, sem hratt af stað ópíóíðafaraldrinum sem leikið hefur Bandaríkin grátt á síðustu árum, og óheiðarlega markaðsetningu framleiðandans…
Dauðahafshandritin II
Í þættinum er haldið áfram að fjalla um eina af merkustu fornleifauppgötvun síðustu aldar, forn handrit sem ungur hirðingjapiltur fann í helli við strönd Dauða hafsins í Palestínu…
Dauðahafshandritin I
Í þættinum er fjallað um eina merkustu fornleifauppgötvun síðustu aldar, þegar ungur hirðingjapiltur fann forn handrit falin í helli við strönd Dauða hafsins í Palestínu.
Emmett Till
Þátturinn fjallar um einn af alræmdustu glæpum bandarískrar sögu, morðið á Emmett Till, fjórtán ára svörtum pilti í Mississippi árið 1955.
Thomas Quick III
Þátturinn er sá síðasti um lygilega sögu Svíans Sture Bergwall, öðru nafni Thomas Quick, sem um árabil var þekktur sem versti raðmorðingi Norðurlandanna, dæmdur fyrir átta morð og…
Thomas Quick II
Þátturinn er annar af þremur um lygilega sögu Svíans Sture Bergwall, öðru nafni Thomas Quick, sem um árabil var þekktur sem versti raðmorðingi Norðurlandanna, dæmdur fyrir átta morð…
Thomas Quick I
Þátturinn er sá fyrsti af þremur um lygilega sögu Svíans Sture Bergwall, öðru nafni Thomas Quick, sem um árabil var þekktur sem versti raðmorðingi Norðurlandanna, dæmdur fyrir átta…
Radovan Karadzic
Í þættinum er fjallað um ævi Radovans Karadzic, leiðtoga Bosníuserba í Júgóslavíustríðinum, og lygilegan flótta hans undan réttvísinni í þrettán ár, en hann var að lokum dæmdur í fjörutíu…
Tasmaníu tígurinn
Spillingarsaga FIFA II
Í þættinum er fjallað áfram um rannsókn bandarísku alríkislögreglunnar og skattstofu á vafasömum fjármálum Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA. Síðari þáttur af tveimur.
Spillingarsaga FIFA I
Í þættinum er fjallað um sögu Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA, starf þess sem áratugum saman hefur einkennst af mútum og spillingu, og upphaf rannsóknar bandarísku alríkislögreglunnar…
„Engillinn“ Ashraf Marwan II
Seinni þáttur um Egyptann Ashraf Marwan, sem var tengdasonur Nassers Egyptalandsforseta og jafnframt njósnari fyrir ísraelsku leyniþjónustuna um árabil. Í þessum þætti er fjallað um…
„Engillinn“ Ashraf Marwan I
Í þættinum er sögð lygileg saga Egyptans Ashraf Marwan, sem var tengdasonur Nassers Egyptalandsforseta og jafnframt mesti landráðamaður í sögu Egyptalands, sem seldi Ísrael ríkisleyndarmál…
Morðið á Robert F. Kennedy
Í þættinum er fjallað um morðið á bandaríska stjórnmálamanninum Robert F. Kennedy, sem var skotinn til bana á hóteli í Los Angeles aðfaranótt 5. júní 1968, þegar hann sóttist eftir…
Estonia
Í þættinum er fjallað um eitt mannskæðasta sjóslys í sögu Evrópu á friðartímum, þegar eistneska farþegaferjan MS Estonia sökk í illviðri á Eystrasaltinu á leið til Stokkhólms í september…
Byltingarmennirnir sem tortímdu sjálfum sér
Í þættinum er fjallað um róttækan hóp vinstrimanna í Japan, Sameinaða rauða herinn. Í árslok 1971 héldu liðsmenn hópsins í afskekktan fjallakofa til að stunda heræfingar, en dvöl þeirra…
Queen Mary og Dönsku Vestur-Indíur
Í þættinum er fjallað um sögu Dönsku Vestur-Indía, nýlendu Danmerkur í Karíbahafi, og Queen Mary Thomas, svarta verkakonu sem leiddi blóðuga uppreisn gegn dönskum yfirvöldum á eyjunum…
Þáttur 15 af 52
Timbúktú-handritin
Í þættinum er fjallað um borgina sögufrægu Timbúktú í norðanverðu Malí. Þegar vígamenn íslamista tóku borgina yfir á vormánuðum 2012 tókst bókavörðum borgarinnar á nær ótrúlegan hátt…
Alberto Fujimori
Í þættinum er fjallað um Alberto Fujimori, forseta Perú frá 1990 til ársins 2000. Fujimori, sonur japanskra innflytjenda til Perú, naut mikillar hylli á fyrstu árum valdatíðar sinnar,…
Mannæturnar í Tsavo
Í þættinum er fjallað um tvö ljón, sem herjuðu á verkamenn sem lögðu járnbraut fyrir breska heimsveldið í Kenía undir lok nítjándu aldar, og tilraunir bresks herforingja til að ráða…
Alexander Litvinenko
Í þættinum er fjallað um mál Rússans Alexander Litvinenko, fyrrverandi leyniþjónustumanns og andstæðings rússneskra stjórnvalda, sem lést í Lundúnum í nóvember 2006 eftir að honum…
Umsátrið í Waco
28. febrúar 1993 ætluðu útsendarar Áfengis-, tóbaks- og skotvopnaeftirlits Bandaríkjanna að kanna grunsemdir um að liðsmenn fámenns kristins trúarsafnaðar, sem hélt til á búgarði fyrir…
Jedwabne
Í þættinum er fjallað um fjöldamorð á Gyðingum í pólska smábænum Jedwabne í miðri seinni heimsstyrjöld, 10. júlí 1941, og umræðu sem kviknaði í kjölfarið af útgáfu bókar um fjöldamorðin…
Benjamín Netanyahu
Í þættinum er fjallað um uppvöxt Benjamíns Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, og leið hans til valda. Netanyahu eða „Bíbí“ eins og hann er gjarnan kallaður ólst að stórum hluta upp…
Korean Air 858
29. nóvember 1987 hvarf suðurkóresk farþegaþota á leið frá Bagdad til Seoul skyndilega í hafið á miðri leið og 115 manns um borð fórust. Undirbúningur stóð þá sem hæst fyrir fyrstu…
Kjarnorkusölumaðurinn
Í þættinum er fjallað um mann sem hefur verið kallaður hinn eini sanni sölumaður dauðans, og hættulegasti maður heims: pakistanska kjarnorkuvísindamanninn AQ Khan, sem smíðaði fyrstu…
Geimskutlan Kólumbía
Fyrir fimmtán árum, 1. febrúar 2003, fórst geimskutla bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA, Kólumbía, þegar hún var á leið til lendingar í Flórída að loknum sextán daga leiðangri.
Kongóstyrjaldirnar miklu
Í þriðja þætti um sögu Kongó í Mið-Afríku er fjallað um valdatíð einræðisherrans Mobutu Sese Seko, sem nefndi landið Saír og gerði það gjaldþrota með eyðslusemi sinni, og vargöldina…
Kongó-krísan
Í þættinum er fjallað áfram um sögu Kongó í miðri Afríku. Landið fékk sjálfstæði frá Belgum í júní 1960, en aðeins örfáum vikum síðar var landið allt í algjörri upplausn.
Kongó Leópolds konungs
Í þættinum er fjallað um sögu Fríríkisins Kongó, gríðarstórrar einkanýlendu sem Leópold II Belgakonungur kom sér upp í miðri Afríku undir lok nítjándu aldar. Innfæddir Kongómenn máttu…
Íranska byltingin
Í þættinum er fjallað um byltinguna í Íran 1978-1979, þegar írönsk alþýða reis upp gegn keisaranum Mohammed Reza Pahlavi, og íhaldssamir íslamskir klerkar komust að lokum til valda.
Kettir
Í þættinum er fjallað um sögu sambúðar katta og manna. Fjallað er meðal annars um nýjustu kenningar um upphaf kattahalds, kattatrú Forn-Egypta, hryllilegar kattapyntingar sem tíðkuðust…
Jerúsalem II
Í þættinum er haldið áfram að fjalla um sögu helgu borgarinnar Jerúsalem. Í þessum þætti er fjallað um sögu borgarinnar á tuttugustu öld og fram til stofnunar Ísraelsríkis. Fyrstu…
Jerúsalem I
Í þættinum er fjallað um sögu Jerúsalem frá því til forna og fram að aldamótum tuttugustu aldar, en á því langa tímabili skiptust á skin og skúrir í sögu borgarinnar helgu, sem ýmist…
Kúrú
Í þættinum er fjallað um dularfullan og ólæknandi sjúkdóm sem herjaði á frumstæða fjallaþjóð í Nýju Gíneu um miðbik tuttugustu aldar, og bandarískan vísindamann sem leysti ráðgátuna…
Kim Jong-un
Í þættinum er fjallað um Kim Jong-un, einræðisherra í Norður-Kóreu, og þann þriðja úr Kim-ættinni sem fer með æðstu völd þar í landi. Farið er það litla sem vitað er með vissu um æsku…
Gíslataka í leikhúsi í Moskvu
Fimmtán ár eru um þessar mundir frá því að téténskir hryðjuverkamenn tóku um 900 manns í gíslingu í leikhúsi í Moskvu. Í þættinum er atburðarásinni þessa októberdaga í Moskvu 2002…
Xi Jinping
Í þættinum er fjallað um ævi eins valdamesta manns heims, Xi Jinping, formanns kínverska kommúnistaflokksins og forseta Kína. Xi var af kommúnískum aðalsættum en varði þó táningsárum…
Kúrdar í Írak
Í þættinum er fjallað um baráttu Kúrda í Írak fyrir sjálfstæðu ríki. Kúrdískir uppreisnarmenn háðu tvö mannskæð stríð við írösk stjórnvöld á sjöunda og áttunda áratug 20. aldar, en…
Port Arthur-fjöldamorðin og skotvopn í Ástralíu
Í þættinum er fjallað um fjöldamorðin í Port Arthur í Ástralíu árið 1996, þegar ungur maður myrti 35 og særði fjölda manns í mannskæðustu skotárás í ástralskri sögu. Morðin urðu til…
Min Kóreudrottning
Í þættinum er fjallað um tildrög þess að Kórea varð japönsk nýlenda í upphafi tuttugustu aldar og endalok hins aldagamla kóreska konungsríkis. Þar kemur við sögu síðasta drottning…
Saga risapöndunnar II
Síðari þáttur af tveimur um sögu pandabjarna. Í þessum þætti er meðal annars fjallað um einn frægasta pandabjörn tuttugustu aldar, Chi-Chi, sem flæktist inn í kalda stríðið, heimsókn…
Saga risapöndunnar
Í þættinum er fjallað um eitt umtalaðasta dýr dýraríkisins, hinn svarthvíta pandabjörn. Í þessum fyrri þætti af tveimur um sögu pöndunnar er fjallað meðal annars um það þegar vestrænir…
Stofnun Norður-Kóreu
Í þættinum er fjallað um tildrög þess að Kóreuskaganum var skipt upp í Norður- og Suður-Kóreu eftir seinni heimsstyrjöld, ævi fyrsta leiðtoga Norður-Kóreu, einræðisherrans Kim Il-Sung,…
Angela Merkel
Í þættinum er fjallað um einn áhrifamesta stjórnmálamann samtímans, Angelu Merkel Þýskalandskanslara. Sagt er frá uppvexti hennar sem prestsdóttir í Austur-Þýskalandi, ferli í eðlisfræðirannsóknum,…
Bandarískir nasistar
Í þættinum er fjallað um Þýsk-bandaríska bandalagið, nasistasamtök sem starfrækt voru af Bandaríkjamönnum af þýskum ættum á árunum fyrir seinni heimsstyrjöld, með þýska nasistaflokkinn…
Farúk Egyptalandskonungur
Sumarið 1952 rændu herforingjar, með Gamal Abdúl Nasser í broddi fylkingar, völdum í Egyptalandi. Þeir steyptu þá af stóli konungi landsins, Farúk. Farúk er í dag helst minnst fyrir…
Þáttur 31 af 52
Þáttur 30 af 52
Þáttur 29 af 52
Þáttur 28 af 52
Þáttur 27 af 52
Þáttur 26 af 52
Þáttur 25 af 52
Taiping-uppreisnin
Í þættinum er fjallað um Taiping-uppreisnina í Kína um miðja nítjándu öld, þegar maður sem taldi sig son Guðs leiddi milljón manna her gegn Kínakeisara, með þeim afleiðingum að minnsta…
Hundar í kapphlaupi við dauðann
Veturinn 1924-1925 ógnaði barnaveikifaraldur afskekktri byggð í Norður-Alaska. Byrgðir bæjarlæknisins af mótefni við barnaveiki voru fljótt á þrotum, og aðeins ein leið fær til að…
Sex daga stríðið
Í þættinum er fjallað um sex daga stríð Ísraels og Egyptalands og annarra Arabaríkja í júní 1967, fyrir hálfri öld.
Konungsmorðin í Nepal
Í þættinum er fjallað um konungsmorðin í Nepal, þegar, árið 2001, að krónprins Nepals skaut til bana alla sína nánustu fjölskyldu, þar á meðal konung og drottningu landsins. Þátturinn…
John F. Kennedy II
Í þættinum er fjallað áfram um ævi Johns F. Kennedy Bandaríkjaforseta, en þann 29. maí verða hundrað ár liðin frá fæðingu hans. Í þessum þætti er fjallað um upphafið að stjórnmálaferli…
John F. Kennedy I
Í þættinum er fjallað um John F. Kennedy Bandaríkjaforseta, en senn verða hundrað ár liðin frá fæðingu hans, 29. maí 1917. Í þessum þætti er fjallað um rætur hinnar nafntoguðu Kennedy-ættar…
Nauðungarflutningarnir á Krímtatörum
Í þættinum er fjallað um sögulegan bakgrunn sigurlags Úkraínu í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í fyrra, nauðungarflutningana á Krímtatörum árið 1944. Þá sakaði Jósef Stalín…
Sarajevó-handritið
Í þættinum er sögð ótrúleg saga forns Gyðingahandrits sem skrifað var á Spáni á fimmtándu öld, rataði síðar til Sarajevó í Bosníu þar sem menn lögðu sig oftar en einu sinni í lífshættu…
Haymarket
Í þættinum er fjallað um ástæðu þess að alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins er haldinn hátíðlegur einmitt 1. maí, blóðbaðið á Haymarket-torgi í Chicago árið 1886.
Téténía II
Í þættinum er fjallað áfram um sögu Téténíu í Kákasusfjöllum, sér í lagi seinni innrás Rússlands í Téténíu 1999, aðdraganda hennar og afleiðingar.
Téténía
Í þættinum er fjallað um sögu Téténíu í Kákasusfjöllum og téténsku þjóðarinnar og aldalangrar baráttu hennar við risavaxna granna sinn til vesturs, Rússland.
Robert Mugabe
Í þættinum er fjallað um ævi Roberts Mugabe, forseta Simbabve.
Nikolai Vavilov
Í þættinum er fjallað um rússneska grasafræðinginn Nikolai Vavilov, sem vann brautryðjendarannsóknir á korni og öðrum nytjajurtum á fyrstu áratugum tuttugustu aldar og byggði upp stærsta…
Jemen II
Síðari þáttur um sögu Jemens.
Jemen I
Í þættinum er fjallað um sögu Jemens. Jemen er í dag stríðshrjáð og sárafátækt, en fyrr á öldum var það eitt mesta menningarsvæði Arabíuskagans, og miðstöð verslunar og viðskipta,…
Andrée-leiðangurinn
Í þættinum er fjallað um Andrée-leiðangurinn, tilraun þriggja Svía til að komast á Norðurpólinn í loftbelg árið 1897, tilraun sem endaði með ósköpum, þegar loftbelgurinn brotlendi…
Japanskir Bandaríkjamenn í fangabúðum
Eftir árás japanska hersins á bandarísku flotastöðina Pearl Harbor árið 1941 voru nærri 120 þúsund Bandaríkjamenn af japönskum ættum gerðir brottrækir af heimilum sínum á vesturströnd…
Rúmenska byltingin
Í þættinum er fjallað um rúmensku byltinguna í desember 1989 og síðustu daga einræðisherrans Nicolae Ceausescus.
Rohingja-þjóðin í Búrma
Í þættinum er fjallað um sögu Rohingja-þjóðarinnar í Búrma. Rohingjar hafa lengi átt undir högg að sækja í heimalandi sínu, sætt ofsóknum og Rohingjar eru ríkisfangs- og réttindalausir.
Bashar al-Assad
Í þættinum er fjallað um ævi og fjölskyldu Bashars al-Assad, sem tók við embætti forseta Sýrlands af föður sínum árið 2000.
Hafez al-Assad
Í þættinum er fjallað um ævi Hafez al-Assad, forseta Sýrlands frá 1970 til 2000, og föður núverandi Sýrlandsforseta Bashars al-Assad, sem ólst upp í sárri fátækt í afskekktu fjallaþorpi…
Scandinavian Star
Í þættinum er fjallað um eldsvoðann í ferjunni Scandinavian Star í apríl 1990. Eldur kviknaði um borð í skipinu á siglingu frá Ósló til Frederikshavn með þeim afleiðingum að 159 manns…
Hakkarar
Í þættinum er fjallað um nokkur tilvik þess að hakkar og tölvuþrjótar hafi látið til sín taka á alþjóðavettvangi, stundað njósnir og jafnvel valdið milliríkjadeilum. Meðal annars er…
Taívan
Í þættinum er fjallað um stormasama sögu eyríkisins Taívans eða Lýðveldsins Kína eins og það heitir formlega, og samskipti þess við risavaxinn nágranna sinn, Alþýðulýðveldið Kína.
Rodrigo Duterte
Í þættinum er fjallað um hinn umdeilda forseta Filippseyja, Rodrigo Duterte, sem styður dauðasveitir sem myrða eiturlyfjasala og aðra glæpamenn og hefur jafnvel sjálfur drepið menn.
Suður-Kórea
Í þættinum er fjallað um sögu Suður-Kóreu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Meðal annars er fjallað um einræðisstjórn hershöfðingjans Park Chung-hee, sem er faðir núverandi forseta…
Dauði Tasmaníutígursins
Í þættinum er fjallað um sorgleg örlög Tasmaníutígursins, einstakrar rándýrategundar sem var einungis að finna á eyjunni Tasmaníu við Ástralíu. Varla leið öld frá því að Evrópumenn…
Flugslysið í Smólensk
Í þættinum er fjallað um það þegar þota sem flutti Lech Kaczynski, forseta Póllands, og fleiri pólsk fyrirmenni fórst við lendingu í Smólensk í Rússlandi í apríl 2010. Allir um borð…
Daniel Ortega
Í þættinum er fjallað um stormasama sögu Níkaragva í Mið-Ameríku og sér í lagi ævi og feril Daniels Ortega, sem nýverið var kjörinn forseti landsins í þriðja sinn, en hann var áður…
Forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 1948
Fjallað um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 1948, og ein óvæntustu kosningaúrslit bandarískrar stjórnmálasögu, þegar forsetinn Harry Truman kom öllum að óvörum og sigraði andstæðing…
Þjóðarmorðið í Namibíu
Í þættinum er fjallað um fyrsta þjóðarmorð tuttugustu aldarinnar, þegar þýskir nýlenduherrar í því sem nú er Namibía í Suðvestur-Afríku réðust af fullum þunga að hirðingjaþjóð Hereróa…
Nárú
Í þættinum er fjallað um eyjuna Nárú í Kyrrahafi, eitt minnsta sjálfstæða ríkis í heimi. Nárú fór á örfáum áratugum frá því að vera eitt ríkasta lands heims til gjaldþrots, og hefur…
Bhumibol Taílandskonungur
Í þættinum er fjallað um ævi Bhumibols Adulyadej, sem ríkti sem konungur Taílands í sjö áratugi, frá 1946 og allt þar til hann lést. Konungurinn var elskaður og dáður af þjóð sinni…
Aleppó II
Síðari þáttur af tveimur um sögu hinnar stríðshrjáðu borgar Aleppó í Sýrlandi. Í þessum þætti er sjónum beint að þeim rúmlega fjögur hundruð árum sem borgin var á valdi Tyrkjasoldáns.
Aleppó
Í þættinum er fjallað um sögu borgarinnar Aleppó í norðanverðu Sýrlandi, sem orðið hefur hvað verst úti í sýrlensku borgarastyrjöldinni. Aleppó hefur lengi verið viðskiptamiðstöð Sýrlands…
Norður-Kórea II
I þættinum er fjallað nánar um sögu Norður-Kóreu, stjórnarhætti stofnanda ríkisins Kim Il Sung sem og valdatíð sonar hans Kim Jong-il, en fljótlega eftir að hann tók við stjórninni…
Kim Il-sung
Í þættinum er fjallað um tildrög þess að Kóreuskaganum var skipt upp í Norður- og Suður-Kóreu, ævi fyrsta leiðtoga Norður-Kóreu, einræðisherrans Kim Il-sung, og upphaf kjarnorkuáætlunar…
Týndi Franklin-leiðangurinn
Í þættinum er fjallað um leiðangur breska landkönnuðarins John Franklins í Norður-Íshaf í leit að norðvestursiglingaleiðinni. Franklin hvarf sporlaust á leiðinni og aldrei hefur fengist…
Islam Karimov og Úsbekistan
Í þættinum er fjallað sögu Úsbekistan á síðustu áratugum. Sagt er frá ævi og valdatíð Islams Karimovs, einræðisherrans miskunnarlausa sem nýlega féll frá, og var meðal annars alræmdur…
Íslamska ríkið II
Síðari þáttur af tveimur um sögu hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við Íslamskt ríki, hafa á síðustu árum lagt undir sig landsvæði í Írak og Sýrlandi og staðið á bak við ótal hryðjuverk…
Rætur Íslamska ríkisins
Þátturinn er annar af tveimur um rætur og upphaf hryðjuverkasamtakanna sem kenna sig við Íslamskt ríki og hafa á síðustu árum lagt undir sig landsvæði í Írak og Sýrlandi og staðið…
Þáttur 31 af 52
Raoul Wallenberg
Í þættinum er fjallað um ráðgátuna um sænska stjórnarerindrekann Raoul Wallenberg sem bjargaði lífi þúsunda gyðinga í Búdapest í seinni heimsstyrjöld en hvarf svo sporlaust í stríðslok.
Stonewall
Í þættinum er fjallað um atburð sem markaði vatnaskil í réttindabaráttu samkynhneigðra og hinsegin fólks í Bandaríkjunum og á heimsvísu, gestir á Stonewall Inn, næturklúbbi fyrir homma…
Valdaránið í Grikklandi 1967
Í skjóli nætur þann 21. apríl 1967 tóku nokkrir hægrisinnaðir herforingjar öll völd í Grikklandi í hendur sér, settu herlög, bönnuðu stjórnmálaflokka og allt andóf og fangelsuðu þúsundir…
Þáttur 27 af 52
Indland og Pakistan II
Seinni þáttur um skiptingu bresku nýlendunnar Indlands í tvö sjálfstæð ríki, Indland og Pakistan, árið 1947. Í þessum þætti er fjallað um eftirmál skiptingarinnar og hlutskipti almennra…
Indland og Pakistan
Í þættinum er fjallað um skiptingu bresku nýlendunnar Indlands í tvö sjálfstæð ríki, Indland og Pakistan, árið 1947, aðdraganda skiptingarinnar og þær ómældu hörmungar sem þær höfðu…
Victoria Woodhull
Í þættinum er fjallað um lygilega ævi baráttukonunnar Victoriu Woodhull, sem árið 1872 varð fyrsta konan til að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna, mörgum áratugum áður en bandarískar…
Þáttur 23 af 52
Rodrigo Duterte
Í þættinum er fjallað um Rodrigo Duterte, nýkjörinn forseta Filippseyja, sem hefur verið kallaður „hinn filippeyski Donald Trump“ vegna stefnumála sinna og yfirlýsinga. Hann hefur…
Nepalska konungsfjölskyldan
Í þættinum er fjallað um morðin á nepölsku konungsfjölskyldunni árið 2001, þegar krónprins Nepals skaut föður sinn og móður og fleiri ættingja til bana.
Boko Haram
Í þættinum er fjallað um sögu nígerísku öfgasamtakanna Boko Haram. Vígamenn samtakanna eru taldir hafa að minnsta kosti tuttugu þúsund mannslíf á samviskunni og meira en tvær milljónir…
Nauðungarflutningar á Krímtatörum
Í þættinum er fjallað um nauðungarflutningana á Krímtatörum árið 1944, en lag um þá hörmungaratburði sigraði í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva á dögunum. Jósef Stalín sakaði…
Hillary Rodham Clinton
Fjallað um bandarísku stjórnmálakonuna Hillary Clinton, æsku hennar og námsár og upphaf sambandsins hennar við Bill Clinton.
Erdogan Tyrklandsforseti
Fjallað um ævi og feril Recep Tayyip Erdogans, forseta Tyrklands.
Tsjernóbyl-slysið
Um slysið í Tsjernóbyl-kjarnorkuverinu í Úkraínu 26. apríl 1986, alvarlegasta kjarnorkuslys sögunnar.
Dilma Rousseff
Í þættinum er fjallað um ævi Dilmu Rousseff Brasilíuforseta, sem nú er sökuð um spillingu og embættisglöp. Hún var skæruliði á dögum herforingjastjórnar í Brasilíu, sat í fangelsi…
Líbía
Í þættinum er fjallað um sögu Líbíu í Norður-Afríku á tuttugustu öld.
Nagorno-Karabakh í Kákasus
Í þættinum er fjallað um héraðið Nagorno-Karabakh í Kákasus sem Armenía og Aserbaídsjan hafa eldað grátt silfur vegna frá falli Sovétríkjanna. Allt að 30 þúsund manns féllu í sex ára…
Radovan Karadzic
Í þættinum er fjallað um ævi Radovans Karadzic, leiðtoga Bosníuserba í Júgóslavíustríðinum, sem nýverið var dæmdur í fjörutíu ára fangelsi af stríðsglæpadómstól fyrir þjóðarmorð og…
Æska og uppvöxtur Donalds Trumps
Í þættinum verður fjallað um æsku, uppvöxt og upphaf viðskiptaferils forsetaframbjóðendans og fasteignajöfursins Donalds Trumps.
Náttúruhamfarir og kjarnorkuslys í Japan
Fimm ár liðin frá náttúruhamförunum miklu og kjarnorkuslysinu í Japan 11. mars 2011, þegar sterkur jarðskjálfti, níu að stærð, reið yfir Japan, flóðbylgja skall á norðausturströnd…
Donald Trump
Í þættinum er fjallað um ættir bandaríska forsetaframbjóðandans og auðjöfursins Donalds Trump, og hvernig afi hans og faðir auðguðust á sínum tíma. Afinn, þýskur innflytjandi, rak…
Morðið á Olof Palme II
Síðari þáttur um morðið á sænska forsætisráðherranum Olof Palme, en um þessar mundir eru þrjátíu ár liðin síðan hann var skotinn til bana í miðborg Stokkhólms. Í þessum þætti er fjallað…
Morðið á Olof Palme
Í þættinum er fjallað um morðið á Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar, og árangurslitla leit sænsku lögreglunanr að banamani hans, en þrjátíu ár eru um þessar mundir frá því að…
Vladimír Pútín
Í þættinum er fjallað um æsku og uppvöxt Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta, feril hans í sovésku leyniþjónustunni KGB, afdrifarík augnablik í Dresden í Austur-Þýskalandi, og hvernig…
Forsetakosningar í BNA 1948
Í þættinum er fjallað um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 1948, og ein óvæntustu kosningaúrslit bandarískrar stjórnmálasögu, þegar forsetinn Harry Truman kom öllum að óvörum og…
Mubarak og egypska byltinginn
Fimm ár eru um þessar mundir síðan Hosni Mubarak Egyptalandsforseti hrökklaðist frá völdum eftir þriggja vikna fjöldamótmæli á götum egypskra borga. Í þættinum er rifjuð upp saga egypsku…
Íranska kjarnorkuáætlunin
Fjallað um sögu írönsku kjarnorkuáætlunarinnar. Upphaf hennar má rekja allt til upphafs sjötta áratugarins, en fyrstu skrefin á kjarnorkubrautinni tóku Íranar með dyggri aðstoð og…
Eiturlyfjasmyglarar í Mexíkó
Aldarlöng saga eiturlyfjasmyglara í Mexíkó og rætur þeirrar vargaldar sem þar geisar á milli glæpagengja.
Saga Sádi-Arabíu
Fjallað um sögu Sádi-Arabíu, hvernig þetta ríki í eyðimörk Arabíuskagans varð og til og hvernig það komst til áhrifa á alþjóðavettvangi.
,