12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 29. september 2024
Hádegisfréttir

Útvarpsfréttir.

Banaslys varð í umferðinni í gærkvöld þegar ekið var á gangandi vegfaranda á Sæbraut í Reykjavík.

Íranir heita hefndum eftir að foringi úr byltingarvarðliðinu féll í árásum Ísraelshers á Beirút á föstudag. Forsætisráðherra Líbanons óttast að milljón Líbana verði á vergangi vegna árásanna.

Það brestur í mörgum innviðum landsins og við því þarf að bregðast, segir Arnar Þór Jónsson fyrrverandi forsetaframbjóðandi sem stofnað hefur lýðræðisflokkinn sem bjóða mun fram í næstu alþingiskosningum.

Hægt hefur á landrisi í Öskju og Veðurstofan telur að hraungos þar - sé líklegri sviðsmynd en stórt spengigos með mikilli ösku. Sveitarfélögin á Austurlandi vilja vera undir allt búin og huga að vatnsbólum.

Lúsmý virðist búið að hreiðra um sig á Norðausturlandi, en það hefur ekki áður fundist austan Eyjafjarðar. Líklega berst tegundin á skjólsæla staði um landið allt.

Langmestur tími landsmanna fer í að sofa, tæpir níu tímar á sólarhring. Tæplega þrír og hálfur tími fer í afþreyingu.

26 hlauparar lögðu af stað í Þingstaðarhlaupið í morgun af tilefni þess að 20 ár eru liðin frá stofnun Félags 100 km hlaupara á Íslandi. Formaður félagsins segir hlaupið líklega fyrsta ofurmaraþon sem hlaupið var á Íslandi.

Þór frá Akureyri vann í gær sinn fyrsta titil í körfubolta í tæp 50 ár þegar liðið hampaði titlinum Meistarar meistarana. Hjá körlunum skákuðu bikarmeistarar síðasta tímabils Íslandsmeisturnum.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 20 mín.
,