Í fyrsta viðtali dagsins var rætt um Almannróm sem er sjálfseignarstofnun sem hefur það hlutverk að tryggja að íslenska sé notuð í allri tækni. Lilja Dögg Jónsdóttir sagði frá starfinu en meðal þess sem þarf að gera er að sannfæra stjórnendur helstu tæknifyrirtækja heims um nauðsyn þess að bjóða upp á íslensku í tölvuforritum sínum.
Úrslit Evrópuþingskosninganna voru ræddi í spjalli með Birni Malmquist, fréttamanni í Brussel, og Rósu Björk Brynjólfsdóttur varaþingmanni sem býr í París. Marcron Frakklandsforseti boðaði í gær til þingkosninga eftir skell sem flokkur hans fékk í kosningunum. Þýsku stjórnarflokkarnir töpuðu líka miklu fylgi.
Að morgni þjóðhátíðardagsins verður sýnd í Sjónvarpinu kvikmynd sem Loftur Guðmundsson tók í Reykjavík þegar lýðveldið var stofnað 1944. Loftur framkallaði filmur og eftirvann í Bandaríkjunum en í tvígang, haustið 1944 og snemma árs 1945, fóru afritanirnar í hafið með Dettifossi og Goðafossi. Gunnar Tómas Kristófersson, starfsmaður Kvikmyndasafns Íslands, sagði frá kvikmyndagerð Lofts og annarri kvikmyndun í tengslum við lýðveldisstofnuna.
Tónlist:
In the year 2525 - Zager and Evans,
Om Jag hade pengar - Börje Lampenius,
Síldarvalsinn - Sigurður Ólafsson,
Uppboð - Valgeir Guðjónsson,
Vormenn Íslands - Hljómskálakvintettinn.