ok

Kvöldfréttir útvarps

Milljarða sparnaður í tillögum, tollastríð skollið á, þungbært að hætta að fljúga á Ísafjörð

Starfshópur um hagræðingu í ríkisrekstri skilaði sextíu tillögum sem eru taldar geta sparað ríkinu sjötíu og einn milljarð á næstu fimm árum, meðal annars með sameiningum stofnana.

Tollastríð er skollið á eftir að Bandaríkin lögðu verndartolla á innflutningsvörur frá Mexíkó, Kanada og Kína. Ríkin hafa heitið því að gjalda líku líkt. Forsætisráðherra Kanada segir Donald Trump Bandaríkjaforseta ætla að rústa efnahag landsins til að auðvelda innlimun.

Nokkur kauptilboð hafa borist í fyrrum meðferðarheimilið Háholt í Skagafirði, sem var sett á sölu snemma á árinu. Stjórnvöld hafa ekki hug á að opna þar vistrými að nýju, þrátt fyrir yfirlýstan skort á slíkum úrræðum fyrir börn og unglinga.

Forstjóri Icelandair segir þungbæra ákvörðun að hætta áætlunarflugi til Ísafjarðar. Samgönguráðherra segir að aðrir samgöngumátar komi ekki í stað flugsins.

Frumflutt

4. mars 2025

Aðgengilegt til

4. mars 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,