Sjómenn um veiðigjöld, fagna dómi í Brúneggjamáli, bændur afþakka raflínu, netspjall ráðamanna um árás á Húta, vatnið í Hveragerði
Ef verð á uppsjávarfiski hefur verið vanmetið árum saman eiga sjómenn inni hjá útgerðinni og hljóta að reyna að sækja það með einhverjum hætti. Þetta segir formaður Sjómannasambandsins.
Formaður Neytendasamtakanna fagnar því að Hæstiréttur hafi tekið af öll tvímæli um að starfsfólk eftirlitsstofnana megi tjá sig um brotalamir í fyrirtækjum. Hæstiréttur sýknaði Matvælastofnun og RÚV af bótakröfu fyrrverandi eigenda Brúneggja.
Bændur í Borgarfirði hafa stofnað hagsmunasamtök vegna háspennulínu sem Landsnet hyggst leggja á Vesturlandi. Sveitarstjórinn í Borgarbyggð segir framkvæmd raflínunnar stórt hagsmunamál
Tímaritið The Atlantic birti í dag allar þær upplýsingar sem fram komu í hópspjalli margra æðstu ráðamanna Bandaríkjanna um fyrirhugaða árás á Húta í Jemen. Blaðamanni var fyrir slysni boðið í hópinn.
Bæjarstjóri Hveragerðisbæjar segir miklar rannsóknir fara fram á neysluvatni bæjarins. Ekki mælist ecolí-gerlar og ekkert bendi til að það sé óneysluhæft.