Kvöldfréttir útvarps

Ekki miklar áherslubreytingar hjá nýjum ráðherra

Ragnar Þór Ingólfsson, nýr félags- og húsnæðismálaráðherra, boðar ekki miklar áherslubreytingar. Húsnæðismál verði áfram á oddinum.

Forstjóri Vinnumálastofnunar býst við draga taki úr atvinnuleysi með vorinu. Fleiri hafa ekki verið án vinnu í tæp fjögur ár.

Stormurinn Goretti hefur sett strik í reikning fjölda fólks í Norður-Evrópu. Flug- og lestarsamgöngur hafa farið úr skorðum og þúsundir heimila eru rafmagnslaus.

Magnús Eiríksson, texta- og lagahöfundur, er látinn. Hans er minnst sem ljúfs og ómissandi risa í íslenskri tónlistarsögu.

Frumflutt

9. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,