ok

Kvöldfréttir útvarps

Donald Trump tekur við, snjóflóðahætta á Austfjörðum og enginn fíkniefnahundur á Suðurnesjum

Gullöld Bandaríkjanna er runnin upp sagði Donald Trump í ávarpi þegar hann tók við embætti forseta í dag.

Enn er óvissustig á Austfjörðum vegna snjóflóðahættu og hættustig í Neskaupstað og á Seyðisfirði. Rýming verður endurskoðuð í fyrramálið. Rafmagn er komið aftur á í Stöðvarfirði en rafmagnslaust er á um 40 heimilum fyrir austan.. Appelsínugul veðurviðvörun gildir til miðnættis á Austfjörðum

Barn fæddist á Seyðisfirði í morgun en þar er engin fæðingardeild og ekki hægt að komast yfir ófæra Fjarðarheiði. Móðirin segir afleitt að búa við slíkt öryggisleysi og mildi að fæðingin gekk vel.

Enginn fíkniefnahundur hefur verið á Keflavíkurflugvelli frá því í fyrrasumar. Þá drapst hundurinn sem hafði gegnt starfanum og engin áform eru um að finna annan hund.

Landsvirkjun hefur áfrýjað dómi héraðsdóms, sem felldi virkjunarleyfi Hvammsvirkjunar úr gildi. Ástæða áfrýjunarinnar er sögð sú að dómurinn sé í meginatriðum rangur.

Ísland mætir öflugu liði Slóvena í síðasta leik í riðlakeppni HM í handbolta karla í Króatíu í kvöld.

Frumflutt

20. jan. 2025

Aðgengilegt til

20. jan. 2026
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,