ok

Kvöldfréttir útvarps

Sýkingar út um allt og búvörulög fyrir Hæstarétt

Veikindi af völdum inflúensu og RS veiru eru fyrr á ferðinni en áður og veirurnar herja auk þess samtímis á þjóðfélagið. Það veldur enn meira álagi á heilbrigðiskerfið segir staðgengill sóttvarnalæknis.

Leit hefur verið hætt í Meradölum eftir að neyðarboð bárust frá Reykjanesskaga í morgun. Ekki er enn ljóst hvaðan boðin bárust en ekkert bendir til þess að nokkur sé þar í neyð.

Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Innness gegn Samkeppniseftirlitinu án þess að það fari fyrir Landsrétt. Fjögur fyrirtæki og samtök vildu aðild að málinu en var hafnað.

Stjórnendur Þórkötlu segja að æskilegt hefði verið að hugsa fyrir því við kaup á íbúðum í Grindavík að margir höfðu ekki stað til að geyma búslóð sína.

Stærsti jarðskjálfti sem mælst hefur í Helsinki reið yfir á jóladag. Skjálftinn var um einn að stærð.

Frumflutt

27. des. 2024

Aðgengilegt til

27. des. 2025
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,