ok

Kvöldfréttir útvarps

Nýir virkjunarkostir, Grindavík, Úkraína og nýr biskup um Þjóðkirkjuna

Verkefnastjórn um rammaáætlun leggur til að fjórir nýir virkjunarkostir verði settir í nýtingarflokk. Þrír eru vatnsaflsvirkjanir á Vestfjörðum og sá fjórði jarðhitavirkjun á Hellisheiði.

Fasteignafélagið Alma gagnrýnir að engar tillögur hafi komið fram sem bæta tjón leigusala í Grindavík. Breyta þurfi lögum til að svo megi verða.

Mikið rafmagnsleysi er í höfuðborg Úkraínu vegna árása Rússa á raforkuver. Komandi vetur gætu Úkraínumenn þurft að búa við allt að 20 klukkustunda rafmagnsleysi á hverjum degi.

Nýkjörinn biskup Íslands segist sjá eftir hverjum einasta sem skráir sig meðvitað úr Þjóðkirkjunni. Sá tími þegar 90 prósent landsmanna voru í kirkjunni sé liðinn.

Íslendingar hentu minna sorpi en áður árið 2022. Engu að síður hendir hver Íslendingur um hundrað kílóum meira en meðal Evrópubúi.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Stjórn útsendingar: Annalísa Hermannsdóttir

Frumflutt

12. júní 2024

Aðgengilegt til

12. júní 2025
Kvöldfréttir útvarps

Kvöldfréttir útvarps

Fréttir

Þættir

,