• 00:00:22Deilur um skatt á nagladekk
  • 00:11:05Tugþúsundir með ógreindan kæfisvefn
  • 00:19:18Öllum boðið nema fötluðum

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Deilt um nagladekk, kæfisvefn, fötluðum ekki boðið

Á þessum tíma árs veltir fólk því fyrir sér hvort setja eigi nagladekk undir bílinn. Ný tillaga um skatt á bagladekk hefur vakið hörð viðbrögð og sitt sýnist hverjum. Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, og Alexandra Briem, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, tókust á um nagladekk.

Talið er að tuttugu til fjörutíu þúsund manns séu með ógreindan kæfisvefn hér á landi sem getur haft alvarlegar afleiðingar. Auðvelt er að meðhöndla kæfisvefn með aðstoð svefnvéla en neikvæð ímynd fólks af þeim komi í veg fyrir að fólk leiti sér hjálpar. Í alvarlegustu tilfellum kæfisvefns eru dánarlíkur svipaðar og af brjóstakrabbameini.

Sjálfsbjörg hrinti af stað nýju átaki í dag til að minna á aðgengishindranir sem enn hamla þátttöku fatlaðs fólks í lífi og starfi. Margrét Lilja Arnheiðardóttir, formaður Sjálfsbjargar, fór yfir málið.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,