Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Einelti í grunnskólum, svefnvélar, Venjulegt fólk, JóiP x Króli

Tölur um einelti sem teknar eru úr Skólapúlsinum benda til þess að það hafi aukist mikið hjá grunnskólanemum á undanförnum árum. Fjölgunin verður á sama tíma og nýir samfélagsmiðlar á borð við Snapchat og Tiktok riðja sér til rúms. Kristján Ketill Stefánsson, lektor við HÍ fór yfir tölurnar.

Fyrirframgefnar hugmyndir margra um kæfisvefn koma í veg fyrir að fólk leiti til sérfræðinga til að fá greiningu og meðferð þó svo að greiningum hafi fjölgað verulega Framfarir í þróun svefnvéla gera það að verkum að 85 prósent þeirra sem hefja meðferð með þeim halda því áfram því heilsa og lífsgæði batna verulega.

5. sería af þáttaröðinni Venjulegt fólk er komin í loftið hjá Sjónvarpi Símans en hún hefur notið mikilla vinsælda. Teymið á bak við þættina er þó ekki að baki dottið og í undirbúningi er sérstakur jólaþáttur og kvikmynd. Rætt var við leikstjórann og handritshöfunda.

Á laugardag stígur tvíeykið Jói Pé og Króli á svið í Hofi með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Kastljós ræddi við þá og tónskáldið og hljómsveitarstjórann Þórð Magnússon.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,