• 00:00:44Rússneskir flóttamen
  • 00:07:35Útlendingalög
  • 00:18:22Skeggi

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Rússneskir flóttamenn, útlendingalög, Skeggi

Rússnesk hjón sem hafa mótmælt stríðinu gegn Úkraínu fá ekki pólitískt hæli á Íslandi, þrátt fyrir mikil tengsl við landið. Þau hafa komið hingað með ferðamenn frá árinu 2018 og höfðu þegar fengið atvinnutilboð. Kærunefnd útlendingamála félst ekki á að um sérstök tengsl við Ísland væri að ræða en sagði þó í úrskurði sínum að lögin væru ekki nægilega skýr. Við settumst niður með Antoni og Viktoríu sem að öllu óbreyttu verða send úr landi innan tveggja vikna.

Málefni flóttamanna hafa verið í brennidepli eftir að lögregla flutti 15 hælisleitendur úr landi af nokkru harðfylgi, þar á meðal fimm manna íraska fjölskyldu. Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, sitja báðar í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis sem er með útlendingamál á sinni könnu. Þær voru gestir Kastljóss.

Skeggi Ásbjarnason var virtur kennari við Lauganesskóla frá fimmta áratugnum og langt fram á þann áttunda, auk þess að sjá um barnatíma í úvarpi á RÚV. Hann er sakaður um að hafa brotið kynferðislega á fjölda skóladrengja og beitt stúlkur andlegu ofbeldi. Þorsteinn Joð rekur þessa sláandi sögu og ræðir við þolendur og vitni í útvarpsþáttunum Skeggi á Rás 1. Þorsteinn sagði Kastljósi frá þáttunum.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,