Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Metrinn burt, Gerður í Blush, Ein komst undan, helgin framundan

Kastljós er í beinni útsendingu frá Borgarleikhúsinu þar sem Íslenski dansflokkurinn frumsýndi Hvíla sprungur og Borgarleikhúsið leikritið Ein komst undan. Guðrún Sóley ræddi við leikhúsgesti sem voru kampakátir með að eins metra reglan á sitjandi viðburðum hafði verið felld á brott.

Gerður Huld Arinbjarnardóttir, eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush, var valin markaðsmanneskja ársins af ÍMARK. Óhættt er að segja að valið hafi komið á óvart enda hefur viðurkenningin einkum fallið forstjórum stórfyrirtækja í té á undanförnum árum. Bergsteinn ræddi við Gerði Huld.

Guðrún Sóely greip aðalleikkonurnar í Ein komst undan glóðvolgar í sminkinu rétt fyrir frumsýningu og í lok þáttar var stiklað á stóru yfir viðburði helgarinnar.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,