Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Skjálfti, Unicef, Toymachine snýr aftur

Söfnunarútsending Unicef verður í beinni útsendingu annað kvöld en þar munu landsþekktir skemmtikraftar koma fram auk þess sem vakin verður athygli á aðstæðum barna í stríði. Markmið útsendingarinnar er að fjölga heimsforeldrum Unicef. Kastljós leit við á æfingu fyrir stóra kvöldið.

Kvikmyndin Skjálfti var frumsýnd hér á landi á fimmtudaginn. Myndin, sem er í leikstjórn Tinnu Hrafnsdóttur, snertir á leyndarmál fjölskyldu og þöggun.

Hljómsveitin Toymachine var á góðri leið með að meika það fyrir aldamót þegar allt sprakk í loft upp og liðsmenn héldu hver í sína átt. Baldvin Z trommari varð leikstjóri og Jenni söngvari gekk í Brain Police. Mörgum árum síðar tókst þeim að lappa upp á sambandið og meira að segja gefa út plötu, sem þeir fagna með útgáfutónleikum á Akureyri og í Reykjavík um helgina. Óðinn Svan Óðinsson leit á æfingu fyrir norðan.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,