ok

Kastljós

Öryggismál í Reynisfjöru, vestur-íslensk fyrirmynd James Bond

Öryggismál í Reynisfjöru eru í brennidepli enn á ný eftir að ferðamaður drukknaði á föstudag. Daginn eftir munaði mjóu að illa færi þegar alda felldi ferðamenn sem ugðu ekki að sérí fjörunni. Heimamenn gagnrýna seinagang stjórnvalda við að bæta öryggi og þvertaka fyrir að úrbætur strandi á landeigendum eins og haldið hefur verið fram. Við ræddum við Írisi Guðnadóttur, fulltrúa hluta landeigenda við Reynisfjöru.

Nýr sögukjallari var opnaður í Grófinni í miðborg Reykjavíkur á dögunum, helgaður vestur-íslenska njósnaranum sir William Stephenson, sem er talinn vera fyrirmyndin að sjálfum James Bond. Kastljós leit við í kjallaranum og hitti einkavin sir William frá Bermúda, sem kom alla leið til Íslands til að vera viðstaddur opnunina.

Frumsýnt

13. júní 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Kastljós

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,