• 00:00:23Strætó hækkar fargjöld
  • 00:09:45Staðan í loftslagsmálum að batna

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Strætó hækkar gjaldskrá, öfgar í veðri

Strætó hefur hækkað gjaldskrá sína um 12,5 prósent. Almenn stakt fargjald kostar nú 550 krónur. Mörgum þykir hækkunin skjóta skökku við á sama tíma og stjórnvöld hafa sett sér það markmið að efla almenningssamgöngur, til að draga úr losun gróðurhúsaloftegunda í umferðinni. Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó. var gestur þáttarins.

Öfgakennt veðurfar er einn af fylgifiskum hlýnunar jarðar. Aðgerðir ríkja tengdar loftslagsvá á næstu árum munu fyrst og fremst miða að því að bjarga mannslífum og draga úr eignatjóni, að sögn Petteri Taalas, framkvæmdastjóra Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar, sem tók þátt í alþjóðlegri loftslagsráðstefnu á Íslandi á dögunum. Kastljós ræddi við hann.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,