• 00:00:18Bjarni Benediktsson um söluna á Íslandsbanka
  • 00:14:33Hvað eru fiskarnir í sjónum gamlir?
  • 00:20:56Kvikmyndin Uglur

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Fjármálaráðherra um bankasölu, aldursgreining fiska og Uglur

Salan á Íslandsbanka hefur vakið upp mikla gagnrýni vegna skorts á gagnsæi og mörgum spurningum er enn ósvarað varðandi ferlið, ekki síst eftir að listi yfir fjárfesta var birtur. Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra situr fyrir svörum.

Á löngum næturvöktum á hóteli í Reykjavík skrifaði Teitur Magnússon sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd. Myndin nefnist Uglur og er að hluta til innblásin af atburðarás sem Teitur varð vitni að á hótelnæturvöktunum.

Aldursgreining fiska eru mikilvæg vísindi fyrir þjóðarbúið. Í þættinum í kvöld lærum við að fiskar eru aldursgreindir með því að lesa í kvarnir þeirra. Við hittum vísindamenn hjá Hafrannsóknarstofnun

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,