Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Brottfall, COVID og Krot og Krass

Við fræðumst um rekavið og landa sem tvíeykið Krot og krass vinnur með í Hverfisgalleríi. Við fjöllum líka um nýja rannsókn sem sýnir fram á að þunglyndi og kvíði hjá þeim sem veiktust alvarlega af covid-19 er enn til staðar sextán mánuðum eftir veikindin.

Við fjöllum einnig um brottfall úr framhaldsskólum en ný skýrsla sýnir meðal annars að grípa þarf til aðgerða strax í grunnskóla til þess að sporna gegn brotthvarfi úr framhaldsskóla. Skýrsla var kynnt á málþingi í dag og þrjú þeirra sem þar héldu erindi eru hingað komin.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,