• 00:00:16Katrín Ólafsdóttir um verðbólgu
  • 00:08:0950 ár frá Blóðuga sunnudeginum
  • 00:21:24Siguvegarar í Ljóðaflóði

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Verðbólga eykst, 50 ár frá Sunnudeginum blóðuga, Ljóðaflóð

Verðbólga mælist nú 5,7 prósent og hefur ekki verið hærri í áratug. Almenningur þarf að búa sig undir hærra vöruverð og hækkandi afborganir á lánum eftir því sem Seðlabankinn hækkar stýrivexti. Katrín Ólafsdóttir, dósent við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík, rýnir í stöðuna.

50 ár eru liðin frá Sunnudeginum blóðuga á Norður-Írland, þar sem 26 breskir hermenn skutu 26 óvopnaða borgara í mótmælum í bænum Derry. Gunnar Hansson og Sólveig Jónsdóttir heimsóttu Derry í tilefni af tímamótunum.

Úrslitin í Ljóðaflóði, ljóðasamkeppni grunnskólanna, sem haldin er á vegum Menntamálastofnunar og KrakkaRúv, voru kunngjörð á dögunum. Við kynnumst ræðum við vinningshafana þrjá í hverjum aldursflokki fyrir sig og heyrum vinningsljóðin.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,