Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Stjórnarandstaðan um efnahagsaðgerðir, snjóflóð í Súðavík og Dórófónn

Stjórnarandstaðan hefur gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir skort á samráði þegar kemur að Covid-aðgerðum. Þrír fulltrúar hennar ræddu um stuðning fyrir fyrirtæki sem hafa orðið illa úti í faraldrinum, þær Hanna Katrín Friðriksson frá Viðreisn, Inga Sæland frá Flokki fólksins og Kristrún Frostadóttir frá Samfylkingu.

Jónþór Eiríksson býr á Súðavík en hann er langþreyttur á samgönguvandamálum á svæðinu og segir lítið þurfa að gerast til að illa geti farið. Hann var einn þeirra sem aðstoðaði við að losa bíla úr snjóflóði sem féll úr Súðavíkurhlíð í gærkvöldi.

Og dórófónn, eða snjall-selló, er hljóðfærið sem Hildur Guðnadóttir notaði við túlkun á tilfinningum Jókersins sem tryggði henni fjölda verðlauna, meðal annars Óskarsverðlaun. Hönnuður hljóðfærisins afhenti á dögunum Listaháskóla Íslands eitt slíkt til þróunar og kennslu.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Chanel Björk Sturludóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Sigríður Dögg Auðunsdóttir. Í beinni útsendingu alla virka daga á eftir Fréttum og Veðri.

Þættir

,