21. júlí - almannavarnið, ljón gengur laust, Snæfellsnes og Una Torfa
Við tókum púlsinn á gosstöðvunum hér í upphafi þáttar. Styttri leið að gosinu var opnuð í gær en hver er staðan í dag? Hjördís Guðmundsdóttir samskiptastjóri hjá Almannavörnum sagði okkur betur frá því.
Ljón gengur laust í Berlín. Umfangsmikil leit að ljóninu fór fram í höfuðborg Þýskalands í gær og íbúar hinna ýmsu hverfa hvattir til að halda sig innandyra auk þess sem börn á leikskólum fengu ekki að njóta útiverunnar. Við slógum á þráðinn til Árnýjar Fjólu Ásmundsdóttur sem er búsett í borginni og spurðum hana um dýrið sem gengur laust.
Jóhann Alfreð Kristinsson úr Hljóðvegi 1 er kominn á Snæfellsnesið og var í þráðbeinni þaðan hjá okkur í þætti dagsins.
Og í lok þáttar kom engin önnur en Una Torfadóttir tónlistarkona til okkar með gítarinn. Hún ferðast vítt og breitt um landið í sumar en gaf sér tíma til að taka eitt lag fyrir okkur til að gíra alla inn í helgina.