Heimsglugginn

Óljós stríðsmarkmið Bandaríkjamanna

Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson ræddu ýmsar hliðar og afleiðingar árása Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran. Hráolía hefur hækkað mikið í verði og óttast er það leiði til umtalsverðra almennra verðhækkana um allan heim.

Í Bretlandi beit Keir Starmer forsætisráðherra hressilega frá sér í fyrirspurnatíma forsætisráðherra. Hann á annars undir högg sækja þó engar sláandi upplýsingar kæmu fram í skjölum sem birt voru í gær um aðdraganda ráðningar Peters Mandelsons sem sendiherra í Bandaríkjunum.

Skipan Mandelsons var umdeild og hann var rekinn úr starfi vegna tengsla við kynferðisafbrotamanninn Jeffrey Epstein.

Birt

12. mars 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,