Heimsglugginn

Frí í útlöndum? Um alþjóðastarf þingmanna

Vilborg Ása Guðjónsdóttir var gestur Heimsgluggans. Hún er alþjóðastjórnmálafræðingur og vinnur doktorsritgerð um þátttöku þingmanna í alþjóðastarfi. Hún segir enn eima eftir af þeirri afstöðu slíkt starf „frí í útlöndum“ og viðhorf gagnvart alþjóðastarfinu neikvætt og ekki borin virðing fyrir því.

Marius Borg Høiby, stjúpsonur Hákons krónprins Noregs, situr í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á tveimur nauðgunum og öðrum alvarlegum afbrotum gegn sex konum. Málið veldur krísu í norsku konungsfjölskyldunni og stuðningur við konungdæmið hefur minnkað þó meirihluti Norðmanna enn hlynntur því. Nútímakonungdæmið er rúmlega aldargamalt. Norðmenn völdu Carl Danaprins til verða konungur Noregs 1905. Hann tók sér konungsnafnið Hákon og varð sjöundi konungurinn sem bar það nafn. Í síðari heimsstyrjöldinni urðu Hákon og Ólafur sonur hans tákn baráttunnar gegn hernámsliði Þjóðverja.

Frumflutt

21. nóv. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimsglugginn

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,