Heimsglugginn

Erfið prófraun lýðræðis

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu við Boga Ágústsson um stöðu lýðræðis og kosningar á árinu 2024. Talað hefur verið um árið sem „kosningaárið mikla“ og þegar hafa kjósendur í 67 löndum greitt atkvæði í þing- eða forsetakosningum. Í þessum löndum búa 3,4 milljarðar fólks. Áður en 2024 verður liðið verður einnig gengið til kosninga í löndum þar sem 440 milljónir búa. Þar eru forsetakosningarnar í Bandaríkjunum 5. nóvember langmikilvægastar. Lýðræðið á víða undir högg sækja, bandaríska hugvekjan Freedom House segir þegar horft á kosningarétt, frelsi fjölmiðla og kúgun minnihlutahópa hafi frelsi minnkað í fleiri ríkjum en þar sem það hefur aukist undanfarin 18 ár. Einn af hverjum þremur sem kjósa árið 2024 búi í landi þar sem gæði kosninga hafa mælanlega versnað á síðustu fimm árum.

Frumflutt

24. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimsglugginn

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,