Heimsglugginn

Fíkniefni í Skotlandi, gengjastríð, konunglegur skandall í Noregi og Robert Kennedy yngri

Fleiri deyja vegna neyslu fíkniefna í Skotlandi en nokkru öðru landi í Evrópu. Skotar hafa miklar áhyggjur, vonir eru neyslurými geti fækkað dauðsföllum.

Stjórnvöld í Danmörku og Svíþjóð hafa ákveðið auka mjög samstarf í baráttu gegn glæpagengjum. Dómsmálaráðherrar landanna og ríkislögreglustjórar hittust og ákváðu aðgerir sem eiga stoppa samfélagsmiðlar séu notaðir til lokka börn og unglinga í Svíþjóð til óhæfuverka í Danmörku, stórauka samstarf dönsku og sænsku lögreglunnar með til dæmis auðveldara aðgengi upplýsingum og skipti á efni úr eftirlitsmyndavélum.

Fíkniefnaneysla á hluta sök á hneyksli í norsku konungsfjölskyldunni. Marius Borg Höiby, stjúpsonur Hákons krónprins, er sakaður um heimilisofbeldi, var handtekinn fyrr í ágúst. Hann virðist hafa gengið í skrokk á sambýliskonu sinni undir áhrifum kókaíns og áfengis. Fyrri kærustur hans komið með svipaðar ásakanir.

Flokksþingi Demókrataflokksins í Bandaríkjunum er ljúka og hefur verið aðal umfjöllunarefni fjölmiðla. Þeir hafa þó einnig fjallað um Robert F. Kennedy yngri sem hefur boðið sig fram til forsetaembættisins. Hann er sonur Roberts Kennedy, sem var myrtur árið 1968 og bróðursonur Johns F. Kennedy forseta sem var myrtur fimm árum áður. Kennedy yngri er þekktur sem harður andstæðingur bólusetninga og fyrir trúa á alls kyns samsæriskenningar, meðal annars flúor í vatni lækki greindarvísitölu fólks og krabbameinsvaldandi, þráðlaus net leiði til „leka úr heilanum“, eins og hann hefur orðað það. Robert Kennedy virðist ætla hætta við framboð og styðja Donald Trump gegn loforði um embætti ef Trump nær kjör.

Frumflutt

22. ágúst 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimsglugginn

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,