
Heimsglugginn
Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni
Þórunn Elísabet Bogadóttir, Björn Þór Sigbjörnsson og Bogi Ágústsson fóru víða í Heimsglugga vikunnar á Morgunvaktinni á Rás 1.
Þau ræddu árásir Rússa í Leipzig og fleiri aðgerðir þeirra og möguleg viðbrögð Vesturlanda. Þá ræddu þau mótmæli danskra bænda gegn nýjum lögum sem takmarka áburðarnotkun vegna áhrifa sem köfnunarefni í áburðinum hefur á lífríki hafsins. Sjórinn við strendur Danmerkur er svo súrefnislaus að hann er nánast lífvana, fiskar, krabbar og aðrar lífverur í hafinu hafa hreinlega drepist eða flúið.
Þá var rætt um fyrsta fyrirspurnartíma Andy Burnhams sem forsætisráðherra Bretlands. Í lokin var greint frá stöðunni í kosningabaráttunni í Svíþjóð þar sem spenna hefur aukist eftir að bilið á milli stjórnar og stjórnarandstöðu minnkaði mikið.

Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni