Mikil seigla í hagkerfi heimsins
Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, var gestur Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1. Bogi Ágústsson ræddi við hann um stöðu efnahagsmála heimsins. Gylfi segir…
Gylfi Magnússon, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, var gestur Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1. Bogi Ágústsson ræddi við hann um stöðu efnahagsmála heimsins. Gylfi segir að vaxtahækkanir víða að undanförnu séu ekki góðar fréttir en hagkerfi heimsins hafi sýnt mikla seiglu undanfarin ár. Það sé ótrúlegt hvað mikið geti gengið á án þess að við lendum í óviðráðanlegri krísu. Jafnvel þegar kreppur skelli á eins og eftir hrunið 2008 hafi flest hagkerfi verið fljót að jafna sig.

Bogi Ágústsson ræðir um erlend málefni