Heimsglugginn

Norræn pólitík og jólalög

Norski Verkamannaflokkurinn er í miklum öldudal um þessar mundir eins og stjórnarflokkar víðar á Norðurlöndum. Framfaraflokkurinn nýtur mests fylgis og þykir tíðindum sæta hann skuli njóta meiri stuðnings en Høyre sem hefur haft afgerandi forystu á hægri væng norskra stjórnmála. Sænska kosningarannsóknin við háskólann í Gautaborg hefur birt lista yfir mat kjósenda á stjórnmálaleiðtogum frá 1979. Fredrik Reinfeldt, fyrrverandi forsætisráðherra og leiðtogi Moderaterna, fær hæstu einkunn, Jimmie Åkesson, formaður Svíþjóðardemókrata, er á botninum. Aðeins einn núverandi leiðtogi kemst á topp 10 listann, Magdalena Anderson, formaður Jafnaðarmanna.

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu einnig við Boga Ágústsson um annan sænskættaðan Anderson. Bandaríska tónskáldið Leroy Anderson sem samdi eitt vinsælasta jólalag allra tíma, Sleigh Ride. Bogi upplýsti Leroy Anderson hefði starfað á fréttastofu Útvarpsins í síðari heimsstyrjöldinni. Hann var mikill tungumálamaður og hafði meðal annars lagt stund á forn-íslenskunám í Harvard-háskóla. Þegar hann var kallaður til herþjónustu 1942 var hann settur í gagnnjósnadeild hersins vegna tungumálaþekkingar sinnar. Hann var sendur til Íslands og hafði það hlutverk sjá til þess íslenskir fjölmiðlar birtu ekki fréttir sem gætu orðið Þjóðverjum til gagns. Það er orðin hefð í síðasta Heimsglugga fyrir jól leika Fairytale of New York með írsku sveitinni Pogues. Við heyrðum brot af flutningi sveitarinnar við útför Shane MacGowans, söngvara Pogues, í desember í fyrra. Svo var upphafleg útgáfa lagsins leikin í heild.

Frumflutt

19. des. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimsglugginn

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,