Heimsglugginn

Friðarráðstefna í Reykjavík, breskir Íhaldsmenn hrökkva til hægri

Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, var gestur Heimsgluggans og ræddi friðarráðstefnu Höfða, friðarseturs Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands, sem fer fram í Iðnó í dag.

Bogi Ágústsson, Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu svo um leiðtogakjör í breska Íhaldsflokknum þar sem almennir félagar kjósa leiðtoga í stað Rishi Sunaks. Eftir kosningar í þingflokknum standa eftir Kemi Badenoch og Robert Jenrick sem bæði eru úr hægri armi flokksins. Fréttaskýrendur telja bæði Frjálslyndir demókratar og Verkamannaflokksmenn fagni því Íhaldsflokkurinn taki hægri beygju.

Frumflutt

10. okt. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimsglugginn

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,