Heimsglugginn

Bretland: Boðað til kosninga og enn af póstskandal

Hundblautur í hellirigningu fyrir utan Downing-stræti 10 boðaði Rishi Sunak forsætisráðherra til nýrra þingkosninga í Bretlandi 4. júlí. Fram tilkynningu Sunaks höfðu breskir miðlar verið undirlagðir af vitnisburði Paulu Vennells, fyrrverandi forstjóra póstsins. Rannsóknarnefnd kannar það sem kallað hefur verið stærsta réttarfarshneyksli í sögu landsins þegar tæplega eitt þúsund útibússtjórar í pósthúsum voru sóttir til saka fyrir skjalafals og þjófnað og á áttunda hundrað voru sakfelldir. Næstum öll voru saklaus. Sökudólgurinn var Horizon, gallað bókhaldskerfi sem Fujitsu bjó til fyrir breska póstinn. gögn benda til þess Vennells hafi vitað um gallana í bókhaldskerfinu og málsóknir væru vafasamar þegar hún fullyrti í þingnefnd 2015 ekkert væri athugavert við tölvukerfið eða málareksturinn gegn útibússtjórunum.

Frumflutt

23. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimsglugginn

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,