Heimsglugginn

Efnahags- og stjórnmál í Bretlandi, Danmörku og Svíþjóð

Stjórnmálaflokkar í Bretlandi halda landsfundi þessar vikurnar, Frjálslyndir demókratar í síðustu viku, Verkamannaflokkurinn í þessari og Íhaldsflokkurinn í næstu viku. Hamingja og eindrægni ríkti hjá Frjálslyndum sem fengu 72 þingmenn kjörna í þingkosningunum í júlí. Ekki hafa setið fleiri Frjálslyndir í neðri málstofunni í heila öld. Ætla hefði mátt sigurgleði ríkti einnig á landsfundi Verkamannaflokksins sem vann stórsigur í sumar og fékk 404 þingsæti. Því var ekki heilsa, flokksmenn samþykktu ályktun um hætta við skerða húshitunarstyrk sem allir eldri borgarar hafa fengið. stjórn Verkamannaflokksins hyggst aðeins greiða þeim allra fátækustu húshitunarstyrk og hefur ákvörðun valdið mikilli óánægju. Búist er við leiðtogakjör verði efst á baugi á þingi Íhaldsflokksins í næstu viku þar sem fjórir frambjóðendur hafa tækifæri til kynna sig.

Moderaterne í Danmörku hafa átt í vandræðum frá því nokkrir starfsmenn á skrifstofu flokksins klöguðu til danska vinnueftirlitsins í ágúst. Sögðu þau vinnuumhverfið mjög slæmt, fólk lagt í einelti og framkoma yfirmanna fjarri öllu lagi. Uppsagnir og hreinsanir hafa fylgt og í gær hætti Kirsten Munch Andersen, framkvæmdastjóri flokksins.

þjóðhagsspá danska seðlabankans gerir ráð fyrir lítilli verðbólgu og viðunandi hagvexti. Í Svíþjóð voru stýrivextir lækkaðir og seðlabankastjóri vill auka einkaneyslu til vinna gegn samdrætti og auknu atvinnuleysi.

Maria Malmer Stenergard, nýr utanríkisráðherra Svía, segir í viðtalið við Dagens Nyheter innflytjendur séu minna vandamál ef „þeir líkjast okkur“. Norska stjórnin hefur boðað strangari innflytjendastefnu.

Frumflutt

26. sept. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimsglugginn

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,