Plast
Við fáum fréttir utan úr heimi af plasti sem þekur heilu strendurnar og hafsvæðin, lífríkinu til stórkostlegs tjóns. En hvernig ætli staðan sé á Íslandi? Kveikur skoðar efnið sem við…
Við fjöllum um vopnaflutninga íslenska flugfélagsins Atlanta sem fram fara með samþykki íslenskra stjórnvalda. Meðal þess sem fram kemur er að 170 þúsund jarðsprengjur hafi verið fluttar um borð í vélum félagsins. Við höldum svo áfram umfjöllun um kannabis frá því síðustu viku og horfum á málið frá mismunandi sjónarhornum.

Kveikur er fréttaskýringaþáttur sem sendur er út hálfsmánaðarlega. Þátturinn er í anda klassískra fréttaskýringaþátta með áherslu á rannsóknarblaðamennsku.
Ritstjóri er Þóra Arnórsdóttir en ritstjórnina skipa Ingólfur Bjarni Sigfússon, Brynja Þorgeirsdóttir og Tryggvi Aðalbjörnsson. Dagskrárgerð: Arnar Þórisson, Ingvar Haukur Guðmundsson og Árni Þór Theodórsson.