Upp, upp mín sál.
Sálartónlist skipar þokkalegan sess í þessum þætti. Annars kennir einfaldlega hinna ýmissa grasa eins og svo oft áður.
Jón eigrar um akra tónlistarinnar, léttstígur og viljugur með skemmtilega fróðleiksmola í farteskinu.
Íslensk tónlist spilar yfirleitt stórt hlutverk. Þægilegur og laufléttur morgunþáttur í umsjón frumherja Rásar 2.
Umsjón: Jón Ólafsson