
Sumarmál
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Páll Ásgeir Ásgeirsson hefur boðið okkur upp á veganesti í sumar og hann var með okkur í dag og nú stóð veganestið enn frekar undir nafni því hann talaði m.a. um ýmislegt sem við getum borðað úr náttúrunni hér á landi.
Við heimsóttum Kristnes í Eyjafjarðarsveit. Á Kristnesi var rekið berklahæli um áratugaskeið og síðustu ár hefur endurhæfingardeild Sjúkrahússins á Akureyri haft þar aðsetur en nú er allt í loft upp, aðalbyggingin sem Guðjón Samúelsson teiknaði er mygluð, endurhæfingardeildin flutt til Akureyrar og óvissa ríkir um framtíð þessa gróðursæla þorps. VIð röltum um þorpið með Maríu Pálsdóttur sem rekur Hælið, safn um sögu berklahælisins.
Fugl dagsins var á sínum stað.
Tónlist:
Bláir fuglar - Grafík / Lag: Grafík, texti: Andrea Gylfadóttir og Helgi Björnsson.
Heimaslóð - Ási í bæ / Lag: Alfreð Washington Þórðarson, texti: Ási í Bæ (Ástgeir Kristinn Ólafsson)
Vegir liggja til allra átta - Elly Vilhjálmsdóttir / Lag: Sigfús Halldórsson, texti: Indriði G. Þorsteinsson.

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.