Sumarmál

Sólmyrkvadagskrá á RUV,sólmyrkvaþjóðsögur og Jeppaþjóðin

Sólmyrkvinn hefst um 16:45 og varir til um 18:50. Tímamörkin velta á því hvar fólk er statt á landinu. Gísli Einarsson og Edda Sif Pálsdóttir munu stjórna beinni sjónvarpsútsendingu hér á ruv í dag, frá klukkan 13:00 til 20:00 (gerð er hlé vegna sjónvarpsfrétta kl. 19:00). Fylgst er með gangi mála víðs vegar um landið, þar á meðal á Bolafjalli, Látrabjargi, Suðurnesjum, Hellissandi og á höfuðborgarsvæðinu. Gísli Einarsson kom til okkar.

Við kynnum okkur líka þjóðsögur sem tengjast sólmyrkvum en Ingibjörg Fríða Helgadóttir, tónlistarkona og umsjónarmaður Þjóðsögukistunnar á Rás 1 setti saman tvo mjög fróðlega þætti um hvernig sólmyrkvar birtast í þjóðsögum víðsvegar um heim. Hún sagði okkur frá.

Í Jeppaþjóðinni í dag er Elísabet Thea stödd í Þórsmörk. Þar ræddi hún við Baldvin Ara Jóhannesson, jeppaeiganda til margra ára, um hvað það er sem gerir jeppasportið svona heillandi og hvernig áhugasamir geta stigið sín fyrstu skref í sportinu.

Birt

12. ágúst 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,