Sumarmál

Svavar og töfragleraugun, börn og náttúran í Veganestinu og fugl dagsins

Við töluðum við Svavar Jónatansson í Mannlega þættinum í fyrra þar sem hann sagði okkur frá bráðsniðugu verkefni sem hann var vinna með heimilisfólkinu á Hrafnistu þar sem þau settu upp sýndarveruleikagleraugu og fengu upplifa aðstæður sem þau annars ættu erfitt með upplifa. hefur hann farið með þetta verkefni á næsta stig því hann fór í tæplega tveggja vikna hringferð um Ísland og safnaði myndefni frá áhugaverðum stöðum allt í kringum landið sem hann mun svo bjóða upp á sem sýndarveruleikaferðalög og fróðleik fyrir heimilisfólk Hrafnistu og jafnvel víðar. Svavar sagði okkur allt af þessu sniðuga verkefni í þættinum.

Páll Ásgeir Ásgeirsson útivistarfrömuður var svo með okkur í dag með Veganestið eins og alla fimmtudaga í sumar. Í þetta sinn talaði hann um börn og útivist. Samverustundir í náttúrunni eru ómetanlegar og þar verða til minningar sem endast. Páll Ásgeir fór betur með okkur yfir þetta í þættinum.

Svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.

Tónlist í þættinum í dag:

Hvað um mig og þig? / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríksson)

Will You Still Love Me Tomorrow / Amy Winehouse (Gerry Goffin og Carole King)

Pale Blue Eyes / The Velvet Underground (Lou Reed)

Ó borg, mín borg / Bubbi og Haukur Morthens (Vilhjálmur frá Skáholti er textahöfundur en Þórir Baldursson útsetti)

Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir

Birt

23. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,