Sumarmál

Brandari sem varð að verðlaunaherferð, bæjarperla úr Dölunum og fugl dagsins

Við forvitnuðumst um Kristján Gauta Karlsson í dag, en hann var áður blaðamaður á Skessuhorni, ofngæslumaður í járnblendi á Grundartanga og starfsmaður í Þörungaverksmiðju á Reykhólum auk þess frysta loðnuhrogn og vinna við þýðingar. Frysta og þýða, ekki þíða - eins og hann orðar það. Hann vinnur í auglýsingabransanum og fékk hugmynd sem átti fyrst bara vera brandari og átti alls ekki kynna fyrir viðskiptavini, en til gera langa var hún ekki bara kynnt fyrir viðskiptavininum heldur var framleidd heil herferð upp úr hugmyndinni sem vann fern verðlaun her á landi og síðast tvenn verðlaun á auglýsingahátíðinni í Cannes í Frakklandi. Kristján Gauti sagði okkur frá þessu ævintýri í þættinum í dag.

Við spjölluðum svo aðeins við Hinrik Wöhler sem sendir okkur bæjarperlur á þriðjudögum í sumar eins og í fyrra. Í fyrsta innslagi sumarsins kíkir Hinrik í Dalina og spókar sig í Búðardal og nágrenni. Fyrsti áfangastaðurinn var Erpsstaðir, þar fer fram fjölbreytt starfsemi, en á bænum er rekið kúabú samhliða framleiðslu á ostum, ís og skyri. Hinrik ræddi þar við bóndann og mjólkurfræðinginn Þorgrím Einar Guðbjartsson. Síðan leiðin niður höfninni í Búðardal í Vínlandssetrið Leifsbúð. Þar eru sagðar sögur af landafundum Eiríks rauða og Leifs heppna. Anna Sigríður Grétarsdóttir, rekstrarstjóri safnsins, sagði frá sýningunni og þessum fornu tímum í fyrstu Bæjarperlu sumarsins.

Og auðvitað er fugl dagsins á sínum stað.

Tónlistin í þættinum:

Torfi á orfi / Snorri Helgason (Snorri Helgason)

Fly on the Wings of Love / Olsen Bræður (Jörgen Olsen)

Skref fyrir skref / Pálmi Gunnarsson (Magnús Eiríksson)

UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Birt

30. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,