
Sumarmál
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Vinkonurnar og samstarfskonurnar Hildur Helgadóttir og Margrét Guðjónsdóttir settu sér fyrir nokkrum árum metnaðarfullt markmið, að synda í öllum sundlaugum landsins. Í fyrra náðu þær að klára listann sem innihélt 127 sundlaugar. Eftir standa ótal ferðalög um landið vítt og breitt og þær hafa þurft að sýna mikla útsjónarsemi, hæfni í samningaviðræðum og snarræði á köflum til þess að komast í erfiðustu laugarnar. Við ræddum við Hildi og Margréti um þetta ævintýri og framtíðina, því þær eru að sjálfsögðu búnar að setja sér nýtt markmið.
Og svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
Sama sól / Sigurður Halldór Guðmundsson (Sigurður Halldór Guðmudnsson)
Sundferð / Hattur og Fattur (Árni Blandon og Gísli Rúnar Jónsson) (Ólafur Haukur Símonarson)
Sundhetjan / Sigríður Thorlacius og hljómsveit Tómasar R. Einarssonar (Tómas R. Einarsson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG ARNHILDUR HÁLFDÁNARDÓTTIR

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.