Sumarmál

Leyft öllum aldurshópum

Rakel og Sölvi og fjölskylduferð til Japan og fugl dagsins

Við fengum, eins og á öðrum föstudögum í sumar, ferðasögu í dag. Fjögurra manna fjölskylda fór þriggja vikna ferð til Japan, Osaka, Kyoto, Tokýo, Hiroshima og Okinawa. Rakel Þorbergsdóttir, fyrrverandi fréttastjóri RÚV og núverandi samskiptastjóri hjá Betri samgöngum kom í þáttinn ásamt syni sínum Sölva Santos, sem var að klára stærðfræði og tölvunarfræði frá HÍ í vor. Hvað var áhugavert, hvernig gekk að finna áhugaverða hluti fyrir þau öll, foreldrana og systkinin sem voru á sautjánda og tuttugasta og öðru ári? Eftir að móðir Rakelar lést ákvað hún að nýta síðustu gjöf móður sinnar í eitthvað minnistætt fyrir fjölskylduna og sérstaklega krakkana, sem sagt ferðalag til Japan. Gamla Japan, nýjasta tíska og tækni og sólarströnd komu við sögu í ferðasögu dagsins.

Fugl dagsins var svo auðvitað á sínum stað.

Tónlist í þættinum:

Úti í Eyjum / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Jakob Frímann Magnússon og Valgeir Guðjónsson)

Bílalest út úr bænum / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Steingrímur Karl Teague og Andri Ólafsson)

Merry Christmas Mr. Lawrence / Ryuichi Sakamoto Trio, Ryuichi Sakamoto · Jaques Morelenbaum · Everton Nelson (Ryuichi Sakamoto)

Mayonaka No Door (Stay With Me) / Miki Matsubara

Umsjón: Gunnar Hansson og Hulda Geirsdóttir

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,