
Sumarmál
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Í dag var hreinlega komið að lokaþætti Sumarmála þetta sumarið þar sem það er föstudagur var líka síðasta ferðasaga sumarsins á dagskrá. Stefán Ingvar Vigfússon uppistandari og eiginkona hans Hólmfríður María Bjarnardóttir, sérfræðingur á Borgarbókasafninu og ritstjóri, eru nýkomin úr ferðalagi til Astana í Kasakhstan með millilendingu í Istanbúl í Tyrklandi. Þau sóttu IFLA ráðstefnu í Astana, sem er stærsta bókasafnsráðstefna í heimi, og þau höfðu frá ýmsu áhugvargðu að segja frá Astana og Istanbúl.
Og svo var fugl dagsins auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
Austurstræti / Laddi og Már Gunnarsson (Laddi)
Niður Laugaveg / Strax (Jakob Frímann Magnússon og Sigurður Bjóla Garðarsson)
Vesturgata / Björgvin Halldórsson (Gunnar Þórðarsson, texti Ólafur Haukur Símonarson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.