
Sumarmál
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Æskusirkusinn hefur boðið krökkum upp á sirkusnámskeið um árabil og nú er einmitt að hefjast haustönn í þessum skemmtilega skóla. Við fáum Jóakim Meyvant Kvaran, kennara við skólann og BA i sirkuslistum, í heimsókn til að segja okkur frá starfsemi æskusirkussins.
Í síðustu Bæjarperlum sumarsins er ferðinni heitið í Voga og á Vatnsleysuströnd. Þar var rætt við Helgu Ragnarsdóttur hjá Minja- og sögufélagi Vatnsleysustrandar um sögu svæðisins, varðveislu gamalla húsa og verkefni félagsins. Síðan var komið við hjá Saunagus Reykjanes við höfnina í Vogum, þar sem systurnar Thelma Rún og Petra Ruth Rúnarsdætur sögðu frá framtakinu, saunugusi almennt og hvers vegna þessi afþreying hefur orðið svona vinsæl. (Hinrik Whöler)
Tónlist frá útsendingarlogg 2026-08-25
Bubbi Morthens - Fallegur dagur.
Beatles, The - Lovely Rita.
Björgvin Halldórsson, Karlakórinn Fóstbræður - Ég bið að heilsa.

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.