Á föstudaginn koma saman í Búðardal söngvararnir Hanna Dóra Sturludóttir, Hallveig Rúnarsdóttir, Elmar Gilbertsson og Ólafur E Rúnarsson. Þar er verið að safna fyrir nýjum flygli sem nýtast mun Dalabúð og tónlistarskólanum. Ólafur Rúnarsson hefur unnið við tónlistarkennslu í Dölunum síðustu 16 ár og hann kom í þáttinn í dag ásamt systur sinni, söngkonunni Hallveigu Rúnarsdóttur.
Í dag byrjuðu ný innslög sem verða á miðvikudögum í sumar, Jeppaþjóðin. Elísabet Thea Kristjánsdóttir skoðar þar jeppalífið frá öllum hliðum, spjallar við jeppafólk á öllum aldri um áhugamálið, ferðirnar og ekki síst brasið, og veltir fyrir sér hlutverki jeppans í íslensku samfélagi. Í fyrsta innslagi Jeppaþjóðarinnar fór Elísabet í heimsókn í Þórsmörk á Jónsmessuhátíð, þar sem jeppaútilega er í fullum gangi og hún kannaði stemninguna. Í innslaginu talaði hún við Harra, Þórarinn Árnason, Pétur Vilhelm Jóhannsson og Lucian Benett-Brandt.
Og svo var auðvitað fugl dagsins á sínum stað.
Tónlistin í þættinum:
Í sól og sumaryl / Hljómsveit Ingimars Eydal (Gylfi Ægisson)
Peaceful Easy Feeling / Eagles (Jack Tempchin)
Tónlist hjartans / Hallveig Rúnarsdóttir og Elmar Gilbertsson (Þorvaldur Gylfason, texti Kristján Hreinsson)
Down on the Corner / Creedence Clearwater Revival (John Fogerty)
Óbyggðaferð / Ómar Ragnarsson (Ómar Ragnarsson)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR