
Sumarmál
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Er vestfirskur framburður að hverfa? Ása Bergný Tómasdóttir, doktorsnemi í málvísindum og Stefanie Bade, aðjúnkt við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands) skrifuðu saman grein í Ritið, tímarit Hugvísindarstofnunar HÍ, sem bar yfirskriftina Vestfirskur framburður. Þar kemur fram að vestfirski framburðurinn sé á undanhaldi en sé þó enn vel þekktur meðal almennings. Ása kom til okkar í dag og sagði betur frá vestfirska framburðinum og stöðu hans.
Svo kom Páll Ásgeir Ásgeirsson ferðafrömuður til okkar, eins og síðustu sumur, með það sem við Veganestið. Það eru áhugaverðar hugvekjur um útivist og hreyfingu og í dag byrjaði hann á því að fjalla um samband manns og náttúru og hversu mikilvægt það er. Útivera snertir öll okkar skilningarvit og hefur margvísleg góð áhrif á okkur og útivist þarf ekki að vera flókin.
Og svo er það auðvitað fugl dagsins.
Tónlistin í þættinum:
Töfrar / Silfurtónar (Júlíus H Ólafsson)
Fólkið í blokkinni / Eggert Þorleifsson (Ólafur Haukur Símonarson)
Byrjaðu í dag að elska / Geirfuglarnir (Rokkmúsirnar)
Happiness / Union Station og Alison Krauss (Victor Krauss og Michael McDonald)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.