Sumarmál

Laugavegurinn og Strandir í ferðasögu Ólafar og fugl dagsins

Við fáum ferðasögur í Sumarmálum á föstudögum og í dag var gestur okkar Ólöf Kristín Sívertsen forseti Ferðafélags Íslands. Ólöf hefur farið víða um landið og oft á slóðir sem eru ekki á allra vitorði. Hún sagði okkur frá tveimur ferðum þar sem hún og fjölskylda hennar, með 8 ára millibili, gengu Laugaveginn, gistu í skálum 4 nætur og nutu náttúrunnar. Svo sagði hún frá tveimur ferðum á Strandir þar sem hún dvaldi nánast allt síðasta sumar og svo hjólaferð þangað sem hún er nýlega komin úr ásamt fjölskyldunni.

Fugl dagsins verður svo auðvitað á sínum stað.

Tónlist í þættinum í dag:

Það geta ekki allir verið gordjöss / Páll Óskar Hjálmtýsson og Memfismafían (Bragi Valdimar Skúlason)

You Are My Sunshine / Aretha Franklin (Jimmie Davis og Charles Mitchell)

Lífið er yndislegt / Hreimur Örn Heimisson, Bergsveinn Árelíusson og Magni Ásgeirsson (Hreimur Örn Heimisson)

Can't Stop the Feeling! / Justin Timberlake (Justin Timberlake, Shellback & Max Martin)

Umsjón: Gunnar Hansson og Guðrún Hálfdánardóttir

Birt

24. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sumarmál

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.

Þættir

,