
Sumarmál
Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.
Íslandsmótið í golfi hófst í dag á Hvaleyravelli í Hafnarfirðinum. Golf er ein vinsælasta íþrótt landsins þrátt fyrir tiltölulega stutt tímabil og færri hitastig en í flestum löndum þar sem golf er stundað. En með batnandi golfvöllum og betri æfingaaðstöðum yfir vetrartímann verða sífellt til fleiri frambærilegir keppniskylfingar sem vilja jafnvel spreyta sig í atvinnumennskunni gegn bestu kylfingum í heimi. Logi Sigurðsson og Ragnhildur Kristinsdóttir hafa bæði orðið Íslandsmeistarar í golfi og þau verða meðal þeirra sem vilja ná að lyfta bikarnum í mótslok næsta sunnudag. Við ræddum í dag við þau um mótið, stöðu íslenskra keppniskylfinga, hvernig þau undirbúa sig fyrir mót og fleira.
Í dag var komið að sjöttu Bæjarperlunni sem við fáum senda frá Hinriki Wöhler á fimmtudögum í sumar. Borgarnes var bæjarperlan í þetta sinn, þar talaði Hinrik við Gunnar Jónsson, sem rekur Hérumbilsafnið á Brákarey og Svövu Víglundsdóttur sem rekur Kaffi kyrrð í Blómasetrinu í eldri hluta bæjarins.
Fugl dagsins var svo auðvitað á sínum stað.
Tónlist í þættinum í dag:
Hamingjan er hér / Jónas Sig (Jónas Sigurðsson)
Mellow Yellow / Donovan (Donovan Philips Leitch)
Blackbird / Sarah McLachlan (Paul McCartney og John Lennon)
UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG ARNHILDUR HÁLFDÁNARDÓTTIR

Ferðalög og útivist, fróðleikur og skemmtun, fólk og náttúra, fjöll og firnindi og sitthvað fleira. Sól og tónlist í Sumarmálum í allt sumar.